listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.combeta
Home/Iceland
More listings nearby

Apartment in Þorlákshöfn, Móar, Sveitarfélagið Ölfus

Apartment in Þorlákshöfn, Móar, Sveitarfélagið Ölfus
Apartment in Þorlákshöfn, Móar, Sveitarfélagið Ölfus - Main view
No longer available

This listing is no longer active. We keep it here for reference, but the details may be out of date.

1-bed apartment for sale, 53 m²

Þorlákshöfn, Móar, Sveitarfélagið Ölfus

1 bedroom·1 bathroom

331.633 €

6.234 €/m²

Listed Sep 8, 2026

About this listing

Nýtt á skrá! LIND Fasteignasala og Stofnhús kynna með stolti Hnjúkamói 14 í Þorlákshöfn. ***HLUTDEILDARLÁN Í BOÐI / EQUIT LOANS OPTION*** Nýjar, glæsilegar og vel skipulagðar 2ja – 4ra herbergja íbúðir í álklæddu og viðhaldslitlu 22 íbúða lyftuhúsi. Rúmgóðar svalir eða verandir fylgir öllum íbúðum. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með vönduðum Voké-III innréttingum, gólfefnum og öllu eldhústækjum (m.a. innbyggðum kæliskáp/frysti og uppþvottavél). Frábær staðsetning miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í alla þjónustu og fallega náttúru með ýmiss konar útivistarmöguleikum. Nánari upplýsingar veita: Heimir F. Hallgrímsson lögg. fasteignasali / 849 0672 / Hrafnkell P. Pálmason, lögg. fasteignasali / 690-8236 / Íbúð 105 er glæsileg 53,2 fm. (þar af 2,5 fm. geymsla) 2ja herbergja íbúð á 1. hæð með stórum 27,7 fm. sérafnotareiti. Sjá nánar sölubækling íbúða. Íbúðin skiptist í forstofu, alrými sem er opið við eldhús með útgengi á sérafnotareit, svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu inn af. Afhending: ágúst - september 2026 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið. --- Allir viðskiptavinir Lindar fasteignasölu fá Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt hjá fjölda fyrirtækja --- Nánari lýsing: Forstofa: Með harðparketi á gólfi og fataskápum. Stofa: Með harðparketi á gólfi og opin við eldhús. Útgengi á rúmgóðan sérafnotareit. Eldhús: Með vandaðri Voké-III innréttingum. Öll eldhústæki fylgja frá Rafha (innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, spansuðu helluborð, sjálfshreinsandi bakaraofn). Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi og góðu skápaplássi. Baðherbergi: Er fullfrágengið með flísalögðu gólfi og tveimur veggjum. Flísalögð sturta með glerþili, upphengt salerni og innrétting við vask (með speglaskáp). Þvottaaðstaða: Er staðsett inn af baðherbergi. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara (barkalausum). Innréttingar og innra skipulag. - Innréttingar: Ljósar innréttingar í bland við dökka viðaráferð, sérsmíðaðar af Voké-III. - Heimilistæki: Vönduð AEG tæki frá Rafha, sjálfhreinsandi ofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og kæli-/frystiskápur - Flísar á baðherbergi: Ljósar ítalskar 60x60 Panaria Surround flísar frá Álfaborg - Gólfefni: Vandað BerryAlloc Cadenza harðparket frá Álfaborg - Innihurðir: Stílhreinar hvítlakkaðar yfirfeldar hurðir Dana SAX frá Parki - Hreinlætistæki: Falleg og endingargóð tæki frá Grohe - Lýsing: LED-ljós frá Ískraft fylgja öllum rýmum íbúða - Rofar og tenglar: Hvítur rofabúnaður af gerðinni Jung, frá Reykjafell - Lagnaefni: Vandað pípulagnu- og raflagnaefni frá traustum framleiðendum Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu verkefnisins: Stofnhús - Hnjúkamói 14 Hnjúkamói 14 er fimm hæða fjölbýlishús, 22 íbúðir eru í húsinu. Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt smábáru frá Áltak. Gluggar og hurðar úr ál/tré frá BYKO. Lóð verður fullfrágengin samkvæmt leiðbeinandi teikningum arkitekts. Lyfta er í húsinu, Gengið er inn í íbúðir af svalagöngum. Íbúðum á jarðhæð fylgir sérnotareitur með timburverönd, svalir eru á íbúðum á efri hæðum. Stéttar næst húsi og gangstígar á lóð verða steypt eða hellulagt, snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið og að sorpgeymslu að öðru leyti verður lóð frágengin með þökum. Á lóðinni eru 25 bílastæði í óskiptri sameign, þar af 2 fyrir hreyfihamlaða. Möguleiki er á að koma upp hleðslustöðvum rafbíla næst húsi. Stofnhús er byggingaraðili og arkitekt hússins er Teikna ehf. Raflagnahönnun er í höndum Voltorka ehf. Burðarþols, lagnir og loftræsting NNE ehf. Landlagshönnun Lilium ehf. Byggingastjóri Goðhús ehf. Verkefnastjórn JTV ehf. Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á. Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur. Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamningi og reyndarteikningum án samþykkis kaupanda, sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Seljandi áskilur sér einnig rétt til nauðsynlegra breytinga á teikningum á byggingartíma vegna tæknilegra útfærslna í samráði við arkitekta, hönnuði og byggingaryfirvöld. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins. Allt auglýsinga- og kynningarefni, eins og tölvugerðar myndir og teikningar, eru eingöngu til hliðsjónar. Laus búnaður og annað sem kann að vera sýnt á teikningum eða þrívíddar myndum en er ekki talið upp í skilalýsingu fylgir þannig ekki íbúðum. Eignin afhendist skv. meðfylgjandi skilalýsingu. ----------------------------------------------------------------------- Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

What's included

Balcony
Area53.2 m²
Rooms2
Bedrooms1
Bathrooms1

Location

Map loading soon

Neighborhood data on demand

Nearby essentials will load when this section comes into view.

Listed on

MBL Fasteignir

331.633 €

Fasteignaleitin

331.633 €

Mortgage calculator

Estimated monthly payment

1.424 €/mo

Down payment20 % · 66.327 €
66.327 €265.306 € loan
Term
Total repayable512.719 €
Interest rate5.00 %

Representative estimate · Landomo is not a mortgage broker. · Rates updated April 2026

Company

  • About
  • Press
  • Portals

Explore

  • Buy
  • Rent
  • Browse by location
  • Guides
  • Research
  • FAQ
  • Pricing

Legal

  • Privacy Policy
  • Terms of Service
  • Cookie Policy
  • Imprint
landomo.com

© 2026 Landomo Real Estate. All rights reserved.