Apartment in Reykjavík
No longer available

This listing is no longer active. We keep it here for reference, but the details may be out of date.

2-bed apartment for sale, 92 m²

Reykjavík

2 bedrooms1 bathroom

643.983 €

6.985 €/m²

Listed May 28, 2026

About this listing

Trausti fasteignasala kynnir Laugaborg  vandað og glæsilegt nýtt lyftufjölbýli við Kirkjusand. Íbúðir er fjölbreyttar að skipulagi frá 2ja til 4ra herbergja á 3 – 6 hæðum. Skjólgóður inngarður og sameiginlegur þakgarður bjóða upp á skemmtilegar stundir utandyra og útsýni til fjalla og sjávar. Íbúðirnar bjóða upp á vandaðar innréttingar, gólfhita, svalir eða sérafnotreiti og sjálfstætt loftræstikerfi er í þeim öllum. Svalalokun, samkvæmt íslenskum stöðlum, er á öllum svölum í úthring hússins. Hlekkur á ítarlegar upplýsingar er hér. Bílakjallari undir húsinu er stór og rúmgóður og verða rúmlega þúsund stæði og gott aðgengi að rafhleðslustöðvum. Íbúar hússins hafa aðgang að stæði í bílakjallara gegn hóflegu gjaldi. 115 íbúðir í íbúðakjarnanum á 3 til 6 hæðum og afhendast í 4 áföngum. Húsið er vel hannað þegar kemur að birtustigi og hverfist um skjólgóðan inngarð. Frábær staðsetning í nýju hverfi á Kirkjusandi, þar sem líflegur Laugardalurinn er í göngufæri með allt það sem hann hefur upp á að bjóða og örstutt í miðbæ Reykjavíkur.  Afhending á 2. áfanga des/jan 2026 Nánari lýsing: Laugaborg (íbúð 220) er frábær 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með suðuaustur svölum. Forstofa er með með fataskáp sem nær upp í loft. Stofa/alrými er björt með útgengi á suður svalir með gustlokun. Eldhús með fallegri sérsmíðaðri innréttingu með quartz plötu á borði. Í eldhúsi er undirborðsofn með sjálfshreinsibúnaði og Span helluborð ofan á með háfi yfir Svefnherbergi eru 2 og er annað með fataskáp sem nær upp í loft. Baðherbergi er með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Egger, quartz borðplötu og sturtu með Unidrain gólfrennupakka.  Þvottahús með flísar á gólfum og upphengdum innréttingum. Geymsla íbúðar er fm 9,7 fm (Myndir á vef eru dæmi um útlit eignar en endurspegla ekki alltaf nákvæmlega auglýsta eign). Bókið skoðun eða fáið nánari upplýsingar hjá: Hallgrímur Hólmsteinsson lgf. í síma 896-6020 eða á netfanginu Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. í síma 767-0777 eða á netfanginu Auðun Ólafsson lgf. í síma 894-1976 eða á netfanginu Guðbjörg Sveinbjörnsdóttir lgf. í síma 899-5949 eða á netfanginu Kristján Baldursson lgf. í síma 867-3040 eða á netfanginu Sólveig Regína Biard lgf. í síma 869-4879 eða á netfanginu   Forsendur söluyfirlits:  Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

What's included

Elevator

Location

Map unavailable

This listing does not include exact coordinates.