listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.combeta
Home/Iceland
More listings nearby

Apartment in Reykjavík, Hlíðarendi, Miðborg

Apartment in Reykjavík, Hlíðarendi, Miðborg
Apartment in Reykjavík, Hlíðarendi, Miðborg - Main view
No longer available

This listing is no longer active. We keep it here for reference, but the details may be out of date.

4-bed apartment for sale, 118 m²

Reykjavík, Hlíðarendi, Miðborg

4 bedrooms·1 bathroom

1.094.161 €

9.257 €/m²

Listed Jul 6, 2026

About this listing

Pálsson Fasteignasala kynnir: Stórglæsileg 4-5 herbergja útsýnisíbúð á 4. hæð í Valshlíð 3. - Penthouse Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. * Þaksvalir með tengi fyrir potti * Quartz steinn á innréttingum * Hækkuð lofthæð Nánari upplýsingar veita: Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða Ómar Hjaltason astmf. S:7789090 eða Fullt verð á íbúðinni er : 149.900.000kr www.eignavakt.is www.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur Birt stærð er 118,2 fm þar af 11,9 fm geymsla í kjallara. Útisvæði er samtals 33 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á vestursvalir og rúmgóðar þaksvalir, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með leirlitum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS með inngreiptum höldum, gæðaraftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 3. Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Gengið er beint inn í rúmgott alrými með eldhúsi með stórri eyju og vaski og stofu/borðstofu með útgengi á vestursvalir og tæplega 30 fm þaksvalir með tengi fyrir heitan pott. Leirlituð eldhúsinnrétting með mattri áferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr burstuðu krómi. Innbyggður ísskápur og vínkælir. Öll eldhúsraftæki eru í hæsta gæðaflokki. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Þrjú rúmgóð svefnherbergi með fataskápum. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, leirlituð innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki úr burstuðu krómi. Sér þvottaherbergi inn af baðherbergi með ljósum innréttingum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0028. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang. Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir. Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga). Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr. kauptilboð. Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati. Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

What's included

Balcony
Area118.2 m²
Rooms5
Bedrooms4
Bathrooms1

Location

Map loading soon

Neighborhood data on demand

Nearby essentials will load when this section comes into view.

Listed on

MBL Fasteignir

1.094.161 €

Fasteignir Visir

820.620 €

Mortgage calculator

Estimated monthly payment

4.699 €/mo

Down payment20 % · 218.832 €
218.832 €875.329 € loan
Term
Total repayable1.691.624 €
Interest rate5.00 %

Representative estimate · Landomo is not a mortgage broker. · Rates updated April 2026

Company

  • About
  • Press
  • Portals

Explore

  • Buy
  • Rent
  • Browse by location
  • Guides
  • Research
  • FAQ

Legal

  • Privacy Policy
  • Terms of Service
  • Cookie Policy
  • Imprint
landomo.com

© 2026 Landomo Real Estate. All rights reserved.