Lýsing eignar
Húsaskjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: fallega og mikið endurnýjaða 4ja herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýlishúsi ásamt rislofti á vinsælum stað á Seltjarnarnesinu á Melabraut 16 með sameiginlegum inngangi neðri hæðar. Fyrir liggur teikning og samþykki frá Seltjarnarnesbæ um að setja stiga framan á húsið og þá myndu allar íbúðirnar fá sérinngang. Jafnframt liggur fyrir samþykki og teikningar fyrir hækkun á húsinu og þá myndi þessi íbúð stækka um 56,4 fm og fá mjög rúmgóðar suðursvalir með einstöku sjávarútsýni. Lóðin er stór og gróin og á hver íbúð í húsinu eitt bílastæði fyrir framan húsið. Nýlega er búið að skipa um þak á húsinu. Íbúðin er laus við kaupsamning. Íbúðin er skráð samtals 111,1 fm að stærð og þar af er aðalhæðin 87,6 fm og innréttað risloft 23,5 fm auk rýmis undir súð sem er ekki inni í skráðum fm. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, eldhús, rúmgóða stofu og borðstofu, baðherbergi og hol á neðri hæð, stigapall og risloft þar sem er gert ráð fyrir rúmgóðu herbergi, þvottahúsi og súðargeymslur. SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA VIDEO AF EIGNINNINánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: [email protected] Nánari lýsing á eign:Gólfefni á hæðinni eru harðparket og flísar á baði.Inngangur er sameiginlegur með neðri hæð. Þaðan er snyrtilegur stigi með steinteppi upp á stigapall. Þegar komið er inn í íbúðina tekur við rúmgott hol sem tengir saman aðrar vistaverur íbúðarinnar og er með stiga upp á risloftið. Rúmgóð stofa-og borðstofa með fallegum stórum gluggum og útsýni út á sjó. Eldhúsið er endurnýjað með hvítri sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu sem er með efri-og neðri skápum og gráum flísum á milli, rúmgóð eyja sem hægt er að sitja við. Endurnýjuð eldhústæki, ofn í vinnuhæð og örbylgjuofn, keramik helluborð. Baðherbergið er fallegt og endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf.Show more