landomo.cz
//Reykjavík
fjolb, Laugavegur 170 íb404 Heklureitur, Reykjavík
1 of 25
fjolb, Laugavegur 170 íb404 Heklureitur, Reykjavík - Main view
1/25

2-bed apartment for sale, 101 m²

Reykjavík

18 536 263 Kč

182 803 Kč/m²

Listed 12 days ago · 19 Jun 2026

Apartment

Category

101.4 m²

Area

About this listing

***  Bókið skoðun fyrir allar íbúðir að Heklureit í síma 773-3532  *** - Fasteignasalan TORG Kynnir: Góð 3ja herbergja íbúð með tvennar svalir. Íbúð merkt:404 á Laugavegi 170. Íbúðin er alls 101,4fm að stærð á 4. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 90,7fm og skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi, borðstofu með útgengi út á svalir til suðurs og aðrar svalir til norðurs útfrá svefnherbergi. Tvö svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottaaðstaða og sér geymslu í sameign merkt: 0021, skráð 10,7fm. Íbúðin er með bílastæði í bílakjallara merkt: B55. Allar nánari upplýsingar um íbúðir veitir Aðalsteinn Bjarnason lgf. í síma: 773-3532 eða netfang: [email protected] Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR Sækja söluyfirlit HÉR Heklureiturinn.  Heklureiturinn sem er Laugarvegur 168 – 174 er einn mest spennandi miðborgarreiturinn sem er í uppbyggingu í dag.  Reiturinn liggur vel við öllum samgönguæðum, stutt inn á Sæbraut, Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Þá er örstutt að ganga í miðbæinn en samt nógu langt frá til þess að verða ekki fyrir truflun þegar miðborgarlífið er í fullri sveiflu. Úrval íbúða er einstakt frá tveggja herbergja íbúðum upp í stórar þakíbúðir sem og íbúðir á tveimur hæðum og munu henta fyrir nánast allar fjölskyldugerðir. Nokkrar með sér inngangi og/eða inngangi af svalagangi. Allir stigagangar með lyftur. Í fyrsta áfanga verða 82 íbúðir að Laugarvegi 168 sem eru til afhendingar haustið 2025. Heildaruppbyggingin mun skila yfir 400 íbúðum alveg við miðborgina og verður umbylting í borgarmyndinni á þessum stað. Um er að ræða glæsilegar íbúðir í fjölbreyttum stærðum við Laugarveg þar sem áhersla er lög á nútímalega hönnun með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og  nýjustu Siemens tækjum. Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Studio Homestead kom að hönnun innréttinganna og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Quarts steinn er á borðum eldhúss og baðherbergis sem sérframleiddur er á Ítalíu frá Santamargherita. Eldhústæki eru frá Siemens.  Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. Aðkeyrsla að bílakjallara er á tveimur stöðum, frá Nóatúni og Laugavegi. Skipulag: Deiliskipulagið að reitnum eru fimm byggingar frá Laugavegi 168-174  sem verður byggt í áföngum.  Skipulagið tekur mið af því að hámarka  gæði staðsetningarinnar, hvað varðar skjólið frá holtinu, útsýnið sem er í allar áttir og sérstaklega í átt að Esjunni, vestur yfir borgina og austur í fjallahringinn. Einnig til suðurs í átt að Perlunni. Götumynd verður endurbyggð í Brautarholti, Nóatúni og við Laugaveg. Við Laugaveginn verða þjónustu- og verslunarrými þar sem áætlað er að borgarlínan muni ganga framhjá. Nálægð við þjónustu og samgöngur gefur möguleika á bíllausum lífstíl en í kjallara verða bílastæðahús þar sem hægt er að aka út hvort sem er út á Laugaveginn eða Nóatún Hönnun: Að hönnun húsanna á Heklureitnum koma tvær arkitektastofur, Teikna teiknistofa arkitekta og THG arkitektar. Var það gert til þess að auka fjölbreytnina í hönnuninni og sá önnur stofan um innra skipulag á meðan hin einbeitir sér að því að sjá um ytra útlit með því að skapa tilbreytni í uppbroti klæðninganna með litum og efnisvali. Um landslagshönnun sér síðan Lilja Filippusdóttir hjá Lilium teiknistofu. Áhersla var lögð á að hvert hús hefði sinn karakter og sérkenni en eru síðan bundin saman með sameinandi þáttum í landslagshönnuninni. Til að hámarka birtu stallast húsið niður til suðurs, það ásamt gólfsíðum gluggum í flestum íbúðum eykur birtu innan íbúða. Myndir tölvugerðar og aðeins til að gefa góða mynd af íbúðum. Sjá nánar skilalýsingu*

What's included

Balcony
Elevator
Garage
Elevator

Key Stats

Area101.4 m²
Rooms3
Bedrooms2
Bathrooms1.0
ElevatorYes
BalconyYes
GarageYes

Listed on

Synced 16 hours ago

Mbl Is

18 536 263 Kč

Estimate

Investment economics

Estimated gross return if you let this apartment

Map

Location

Reykjavík

Map unavailable

This listing does not include exact coordinates.

Neighborhood

Nearby essentials

Reykjavík

Exact location unavailable

Nearby place distances need listing coordinates.

Financing

Mortgage calculator

Estimated monthly payment

471.974 kr./mo

5.00 % rateAPR 5.86 %
Down 20%Loan 80%
21.980.000 kr.87.920.000 kr. loan
Total repayable169.910.486 kr.
Interest rate5.00 %
APR5.86 %

Representative estimate · Landomo is not a mortgage broker.

© 2026 Landomo. All rights reserved.

Map Explorer
Home
Apartment