listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.combeta
Home/Iceland
More listings nearby

Apartment in Reykjavík

Apartment in Reykjavík
Apartment in Reykjavík - Main view
No longer available

This listing is no longer active. We keep it here for reference, but the details may be out of date.

2-bed apartment for sale, 72 m²

Reykjavík

2 bedrooms·1 bathroom

620.614 €

8.596 €/m²

Listed Sep 13, 2026

About this listing

Fasteignasalan TORG Kynnir: Góð 2ja herbergja íbúð með svalir. Íbúð merkt:502 á Laugavegi 170. Íbúðin er alls 72,2fm að stærð á 5. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 64,3fm og skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu með útgengi út á svalir. Svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu í sameign merkt: 0028, skráð 7,9fm. Íbúðin fylgir sér bílastæði merkt B34. Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Þóru Þrastardóttur, fasteignasali í GSM: 822-2225, eða Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR Sækja söluyfirlit HÉR Heklureiturinn. Heklureiturinn sem er Laugarvegur 168 – 174 er einn mest spennandi miðborgarreiturinn sem er í uppbyggingu í dag. Reiturinn liggur vel við öllum samgönguæðum, stutt inn á Sæbraut, Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Þá er örstutt að ganga í miðbæinn en samt nógu langt frá til þess að verða ekki fyrir truflun þegar miðborgarlífið er í fullri sveiflu. Úrval íbúða er einstakt frá tveggja herbergja íbúðum upp í stórar þakíbúðir sem og íbúðir á tveimur hæðum og munu henta fyrir nánast allar fjölskyldugerðir. Nokkrar með sér inngangi og/eða inngangi af svalagangi. Allir stigagangar með lyftur. Í fyrsta áfanga verða 82 íbúðir að Laugarvegi 168 sem eru til afhendingar haustið 2025. Heildaruppbyggingin mun skila yfir 400 íbúðum alveg við miðborgina og verður umbylting í borgarmyndinni á þessum stað. Um er að ræða glæsilegar íbúðir í fjölbreyttum stærðum við Laugarveg þar sem áhersla er lög á nútímalega hönnun með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og nýjustu Siemens tækjum. Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Studio Homestead kom að hönnun innréttinganna og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Quarts steinn er á borðum eldhúss og baðherbergis sem sérframleiddur er á Ítalíu frá Santamargherita. Eldhústæki eru frá Siemens. Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. Aðkeyrsla að bílakjallara er á tveimur stöðum, frá Nóatúni og Laugavegi. Skipulag: Deiliskipulagið að reitnum eru fimm byggingar frá Laugavegi 168-174 sem verður byggt í áföngum. Fyrsta húsið sem nú er í byggingu er Laugavegur 168. Skipulagið tekur mið af því að hámarka gæði staðsetningarinnar, hvað varðar skjólið frá holtinu, útsýnið sem er í allar áttir og sérstaklega í átt að Esjunni, vestur yfir borgina og austur í fjallahringinn. Einnig til suðurs í átt að Perlunni. Götumynd verður endurbyggð í Brautarholti, Nóatúni og við Laugaveg. Við Laugaveginn verða þjónustu- og verslunarrými þar sem áætlað er að borgarlínan muni ganga framhjá. Nálægð við þjónustu og samgöngur gefur möguleika á bíllausum lífstíl en í kjallara verða bílastæðahús þar sem hægt er að aka út hvort sem er út á Laugaveginn eða Nóatún Hönnun: Að hönnun húsanna á Heklureitnum koma tvær arkitektastofur, Teikna teiknistofa arkitekta og THG arkitektar. Var það gert til þess að auka fjölbreytnina í hönnuninni og sá önnur stofan um innra skipulag á meðan hin einbeitir sér að því að sjá um ytra útlit með því að skapa tilbreytni í uppbroti klæðninganna með litum og efnisvali. Um landslagshönnun sér síðan Lilja Filippusdóttir hjá Lilium teiknistofu. Áhersla var lögð á að hvert hús hefði sinn karakter og sérkenni en eru síðan bundin saman með sameinandi þáttum í landslagshönnuninni. Til að hámarka birtu stallast húsið niður til suðurs, það ásamt gólfsíðum gluggum í flestum íbúðum eykur birtu innan íbúða. Myndir tölvugerðar og aðeins til að gefa góða mynd af íbúðum. Sjá nánar skilalýsingu*

What's included

Elevator
Garage
Area72.2 m²
Rooms2
Bedrooms2
Bathrooms1

Location

Map unavailable

This listing does not include exact coordinates.

Listed on

MBL Fasteignir

620.614 €

Mortgage calculator

Estimated monthly payment

2.665 €/mo

Down payment20 % · 124.123 €
124.123 €496.491 € loan
Term
Total repayable959.498 €
Interest rate5.00 %

Representative estimate · Landomo is not a mortgage broker. · Rates updated April 2026

Company

  • About
  • Press
  • Portals

Explore

  • Buy
  • Rent
  • Browse by location
  • Guides
  • Research
  • FAQ
  • Pricing

Legal

  • Privacy Policy
  • Terms of Service
  • Cookie Policy
  • Imprint
landomo.com

© 2026 Landomo Real Estate. All rights reserved.