Apartment in Reykjavík, Hlíðarendi, Miðborg

1-bed apartment for sale, 51 m²

Reykjavík, Hlíðarendi, Miðborg

1 bedroom1 bathroom

460.469 €

8.994 €/m²

Listed Sep 12, 2026

About this listing

2ja herb. íbúð í Haukahlíð 5 ásamt stæði í bílageymslu. Stutt í Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Kjörin eign fyrir fyrstu kaupendur. Hér er eignin í 3D: RE/MAX og Þorsteinn Ólafs löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu fallega 2ja herb. íbúð á 2. hæð í Haukahlíð 5, 102 Reykjavík með stæði í upphitaðri bílageymslu. Vestursvalir með rafmagnshitara og svalalokun með útsýni í átt að Reykjavíkurflugvelli. Frábær staðsetning. Göngufæri í Háskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands og í náttúruperlur s.s. Öskjuhlíð og Nauthólsvík. Eign sem vert er að skoða. Íbúðin skiptist í alrými, þ.e. stofu, borðstofu og eldhús, eitt svefnherbergi, rúmgott baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Svalir til vesturs eru 4,9 m². Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara og sér bílastæði í bílgeymslu. Íbúðin er 51,2 m² og þar af er góð geymsla, 3,7 m². Haukahlíð 5 var byggð 2019. Nánari lýsing: Forstofa: Forstofa er með fataskáp. Alrými skiptist í eldhús, stofu og borðstofu með útgengi á yfirbyggðar svalir. Eldhúsið er með fallegri innréttingu. Keramik helluborð og blástursofn. Tæki eru frá Electrolux. Stofa og borðstofa: Harðparket er á gólfi og útgengi á svalir. Svefnherbergi: Harðparket er á gólfi með góðu skápaplássim. Baðherbergi: Baðinnrétting með handklæðaofni. Salernið er upphengt. Hitastýrð blöndunartæki í sturtu. Flísalagt gólf og veggir. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Í húsinu er stigahús með lyftu sem gengur niður í bílageymslu og í geymsluna. Í húsinu er stigahús með lyftu sem gengur niður í bílageymslu. Húsið er einangrað að utan og klætt með málmklæðningu. Bílastæði í upphitaðri bílageymslu. Haukahlíð 5 er glæsilegt fjöleignarhús á Hlíðarendasvæðinu, steinsnar frá miðbæ Reykjavíkur, en utan skarkala, sem gjarnan fylgir búsetu í miðbæ. Staðsetningin er í nálægð útivistarsvæðanna í Öskjuhlíð og Nauthólsvík og í göngufæri við háskóla. Knattspyrnufélagið Valur er með sína íþróttaaðstöðu í næsta nágrenni. Einnig er stutt í miðbæ Reykjavíkur og verslunarkjarna eins og Kringluna. Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Ólafs lögg. fasteignasali í síma 842-2212, . Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Kostnaður kaupanda: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga). 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar. 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu 69.900 m. vsk.

What's included

Balcony
Garage

Location

Map loading soon

Neighborhood data on demand

Nearby essentials will load when this section comes into view.