Apartment in Kópavogur

1-bed apartment for sale, 84 m²

Kópavogur

1 bedroom1 bathroom

608.166 €

7.249 €/m²

Listed Sep 4, 2026

About this listing

RE/MAX kynnir með stolti: Hafnarbraut 18. Vandaðar og glæsilegar íbúðir í nýju og fallegu fjölbýlishúsi við sjávarsíðuna á Kársnesi, 200 Kópavogi. ⭐️ Fjölbreyttar stærðir og gerðir frá 48 til 194 fm. Stæði í bílageymslu fylgir flestum íbúðum. ⭐️ Íbúðirnar skilast fullbúnar með parketi. Sérsmíðaðar innréttingar frá Brúnás. Vönduð eldhústæki og sjálfstætt loftskiptikerfi. Aukin lofthæð, 270-290 cm. Íbúð 107: Rúmgóð og vel skipulögð tveggja herbergja 83,9 fm íbúð á jarðhæð. Tvískiptar svalir 3,7 fm svalir með svalalokun og rúmgóður 23,28 fm sérafnotareitur bæði með vönduðum bambus timburpalli. þvottahús innan íbúðar með vandaðri innréttingu. Bílastæði fylgir eigninni í bílakjallara. 11,9 fm geymsla í sameign. ⭐️ Kynningarvefur hússins ⭐️ Bókið skoðun, sýnum alla daga Þorsteinn Yngvason, Lögmaður/löggiltur fasteignasali, í síma 696-0226 / Elvar Frímann Frímannsson, Löggiltur fasteignasali, í síma 659-6606 / Guðmundur Þór Júlíusson, Löggiltur fasteignasali, í síma 858-7410 / Ending og gæði voru höfð að leiðarljósi við allt efnisval og frágang hússins. Hér eru helstu kostir við frágang: ✅ Sjálfstætt loftskiptikerfi í öllum íbúðum ✅ Sérsmíðaðar innréttingar, framleiddar og uppsettar af Brúnaás. ✅ Ítalskar kvarts borðplötur á eldhúsum og baðherbergjum ✅ Aukin lofthæð í öllum íbúðum, 270 – 290 cm ✅ Innbyggður kæliskápur og uppþvottavél. Hreinlætistæki frá Grohe ✅ Vönduð og falleg álklæðning sem veðurkápa ✅ Sér þvottahús í flestum íbúðum ✅ Svalagólf og sérafnotareitir skilast með viðhaldsléttu Bambus pallaefni ✅ Vönduð svalalokun/skýli í völdum íbúðum Húsið: Hafnarbraut 18 er vandað og einstaklega vel staðsett fjölbýlishús við sjávarsíðuna á vestanverðu Kársnesinu í námunda við fyrirhugaða Fossvogsbrú sem mun, ásamt Borgarlínustöð, skapa sterka tengingu við Öskjuhlíð, háskólasvæðin, Reykjavíkurflugvöll og miðborg Reykjavíkur. Húsbyggingin er fimm hæðir á niðurgröfnum kjallara þar sem eru bílastæði, sérgeymslur, sameiginlegar reiðhjóla- og vagnageymslur og tæknirými. Á íbúðahæðunum fyrir ofan eru 52 fjölbreyttar íbúðir af mismunandi gerð, stærð og herbergjafjölda. Byggingin er hönnuð fyrir fjölbreyttan markhóp íbúa, allt frá sérhönnuðum stúdíóíbúðum til rúmgóðra fjölskylduíbúða. Byggingaraðili/aðalverktaki er Brúarbyggð ehf. ⭐️ Skilalýsing og tækjalisti seljanda ⭐️ Hönnun: Arkitektar og aðalhönnuðir eru Skala: arkitektar Burðarþolshönnun: Verkfræðistofan Víðsjá Lagna- og loftræstihönnun: Verkfræðistofan Víðsjá Raflagnahönnun: Sturla Snorrason Hljóðvistarhönnun: Myrra hljóðstofa Eldvarnahönnun: ÖRUGG verkfræðistofa Landslagshönnun og innanhússhönnun: Skala: arkitektar Umhverfið: Hverfið er rólegt og gróið og býr yfir miklum náttúrutöfrum. Skólar eru í næsta nágrenni og í göngu fjarlægð er bæði Sky lagoon og sundlaug Kópavogs. Þá eru nærri verslanir, heilbrigðisþjónusta að ógleymdum menningarperlum Kópavogs, Gerðasafni, Salnum og Kópavogskirkju sem er eitt af kennileitum bæjarins. Stutt er í matvöruverslanir og alla helstu þjónustu. Kársnesið er með fjölda göngu- og hjólastíga sem tengist hvort sem er til Reykjavíkur eða inn í Kópavoginn. Einstök staðsetning fyrir þá sem elska að horfa út á hafið og njóta þess að vera með bát í höfn. Skipulagsgjald: Kaupendur greiða álagt skipilagsgjald við endanlega útgáfu brunabótamats sem nemur 0,3% af heildarmati.

What's included

Balcony
Elevator
Garage

Location

Map unavailable

This listing does not include exact coordinates.