# fjolb, Vetrarbraut 2 - íbúð 109, Garðabær

> Canonical listing: https://landomo.com/property/651066f2-e9d6-4e08-a50b-ebd46aeba356

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** active
- **Transaction:** sale
- **Category:** apartment
- **Asking price:** 97,800,000 ISK
- **Location:** Garðabær, IS
- **Floor area:** 104.2 m²
- **Bedrooms:** 3
- **Published:** 2026-10-15T18:41:23.226Z
- **Last updated:** 2026-10-15T19:24:28.047Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Eignamiðlun kynnir:
Vetrarmýri er nýtt og heillandi hverfi sem rís miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í nánd við Vífilsstaði, golfvöll GKG, Heiðmörk og nýja íþróttaaðstöðu í Miðgarði. Íbúðirnar eru einstaklega vel hannaðar, svansvottaðar með gæði og þægindi í fyrirrúmi. Innréttingar eru vandaðar og allt efnisval smekklegt og tímalaust. Bókið skoðun hjá sölumanni.

Í hverri íbúð er loftskiptikerfi sem eykur loftgæði, stuðlar að heilnæmu innilofti og bætir líðan íbúa. Í bílakjallara fylgir öllum íbúðum eitt til tvö bílastæði og sumum þeirra fylgir einnig frístundaskúr eða bílskúr. Hverfið nýtur sterkra innviða Garðabæjar auk þess sem stutt er í marga af stærstu verslunarkjörnum höfuðborgarsvæðisins og fjölbreytta þjónustu. Góðar tengingar eru við stofnbrautir. Skipulag svæðisins hefur hlotið alþjóðlegu umhverfisvottunina BREEAM.

NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Gunnar Bergmann Jónsson, Löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða 

Opinber skráning eignar:
Íbúð merkt 01-09 er vönduð 4 herbergja íbúð. Fastanúmer eignar: 253-4851. Birt flatarmál er 104.2 fm með sérafnotarétt og sérgeymslu í sameign. Bílastæði fylgir íbúðinni í bílastæðahúsi. Tölvumyndir eru af sýningaríbúðum.
**Heimasíða verkefnis**

Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með forstofuskáp. Mjög rúmgott alrými þar sem eldhús er opið inn í stofu. Stór vinnueyja í eldhúsi og gott skápapláss. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél í eldhúsinnréttingu. Útgengi út á rúmgóðan sérafnotareít um 12 fm. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni ásamt baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og innréttingu. Sér þvottahús innan íbúðarinnar. Geymsla og sér bílastæði í kjallara hússins.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.

Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

## Source and attribution

- Cite and link: https://landomo.com/property/651066f2-e9d6-4e08-a50b-ebd46aeba356
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
