listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.combeta
Home/Iceland
More listings nearby

atv, Fiskislóð 45, Reykjavík

atv, Fiskislóð 45, Reykjavík
atv, Fiskislóð 45, Reykjavík - Main view

Commercial property for sale, 110 m²

Fiskislóð 45, Reykjavík

510.965 €

4.645 €/m²

Listed Aug 6, 2026

About this listing

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir nýtt í einkasölu: Einstakt „Loft“ á Granda – Mikil lofthæð, falleg og björt alrými, stórir og bjartir gluggar sem hleypa inn góðri dagsbirtu með góðu útsýni. Eignin er vel staðsett á Grandanum til þess að njóta allrar þeirrar skemmtilegu uppbyggingar sem er að eiga sér stað, fjöldi veitingastaða, og verslana í göngufæri ásamt mikilli nálægð við sjávarsíðuna með fjölda gönguleiða. Nánari lýsing: Komið er inn um snyrtilegan sameiginlegan inngang á jarðhæð og þaðan upp stiga í eignina. Þegar inn er komið blasir við stórt, opið og einstaklega bjart alrými með mikilli lofthæð sem gefur eigninni sérstakt yfirbragð, parket er á gólfi. Eldhús er opið við alrýmið, þar er falleg hvít innrétting með eyju sem hægt er að sitja við. Milliloft er bjart með fallegri yfirsýni yfir alrýmið. Parket á gólfi, opnanlegur þakgluggi veitir góða birtu og loftun. Auðvelt væri að útbúa þar eitt eða fleiri herbergi / rými eða nýta sem skrifstofu, vinnustofu, fundarherbergi. Milliloftið er óskráð og telur um 25 fm. Skráð stærð eignarinnar með millilofti er um 110 fm. Herbergi með góðum gluggum, parket á gólfi, mikilli lofthæð sem býður upp á fjölbreytta nýtingu. Baðherbergi er flísalagt og fallegt með vegghengdu salerni, sturtu og hvítri innréttingu, tengi er fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Húsið er klætt að utan með áli og því viðhaldslétt. Í húsinu er fullkomið sprinkler-brunavarnarkerfi og brunavarnir hafa verið yfirfarnar af slökkviliði. Húsfélagið er jafnframt með samning um brunavarnafulltrúa. Ný eignaskiptayfirlýsing hefur verið gerð fyrir húsið en á eftir að þinglýsa henni. Næg bílastæði eru við húsið. Grandi hefur á fáum árum þróast í eitt vinsælasta hverfi Reykjavíkur. Í næsta nágrenni eru vinsæl kaffihús, veitingastaðir, sérverslanir, listasöfn, þjónusta og fallegar gönguleiðir við sjávarsíðuna. Miðbær Reykjavíkur er í örfárra mínútna fjarlægð. Allar nánari upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson fasteignasali í síma 899-1178 eða Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður: 1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Floor Area110 m²

Location

Map loading soon

Neighborhood data on demand

Nearby essentials will load when this section comes into view.

Listed on

MBL Fasteignir

510.965 €

Mortgage calculator

Estimated monthly payment

2.194 €/mo

Down payment20 % · 102.193 €
102.193 €408.772 € loan
Term
Total repayable789.976 €
Interest rate5.00 %

Representative estimate · Landomo is not a mortgage broker. · Rates updated April 2026

Company

  • About
  • Press
  • Portals

Explore

  • Buy
  • Rent
  • Browse by location
  • Guides
  • Research
  • FAQ

Legal

  • Privacy Policy
  • Terms of Service
  • Cookie Policy
  • Imprint
landomo.com

© 2026 Landomo Real Estate. All rights reserved.