listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.combeta
Home/Iceland
More listings nearby

House in Seltjarnarnes

House in Seltjarnarnes
House in Seltjarnarnes - Main view
No longer available

This listing is no longer active. We keep it here for reference, but the details may be out of date.

House for sale, 267 m²

Seltjarnarnes

5 bedrooms·2 bathrooms

1.590.511 €

5.959 €/m²

Listed Aug 8, 2026

About this listing

RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Glæsilegt og mikið endurnýjað endaraðhús á Selbraut 2, Seltjarnarnesi, byggt 1979 og endurhannað af innanhússarkitekt Valgerði Sveinsdóttur árið 2005. Eignin er 266,9 m² að stærð og skiptist í tvær hæðir auk bílskúrs og garðskála. - Skoðaðu eignina í 3D hér (með og án húsgagna) - Fasteignamat 2027 - 205.500.000 kr. - Falleg arinstofa - 70 m² þaksvalir - Tvöfaldur bílskúr og næg bílastæði - Eign sem vandað hefur verið við endurbætur Viðhald: Við endurnýjunina var húsið tekið í gegn frá grunni, allar innréttingar endurnýjaðar, baðherbergi uppfærð, loft endurgerð, vatns- og raflagnir endurnýjaðar, gólfhiti lagður á neðri hæð og miðstöðvarlagnir endurnýjaðar á efri hæð. Stigi var einnig færður og endurgerður, sem gefur eigninni nútímalegt og opið yfirbragð. Garðskáli endurnýjaður 2007. Bílskúrshurðir endurnýjaðar fyrir 10 árum. Þakpappi bræddur ca 2007. Húsið býður upp á afar björt og rúmgóð alrými með mikilli lofthæð. Efri hæðin hýsir svefnherbergin og annað baðherbergi, ásamt opnu sjónvarpsholi. Alls eru 2 baðherbergi og 4 svefnherbergi, en hægt að hafa svefnherbergin 6 með lítilli fyrirhöfn, sem gerir húsið tilvalið fyrir stórar fjölskyldur eða þær sem þurfa mikið rými. Staðsetningin á Seltjarnarnesi er eftirsótt, róleg og fjölskylduvæn, með stuttri leið í alla helstu þjónustu. Neðri hæð Aðalhæð eignarinnar þar sem finna má björt og opin alrými, eitt svefnherbergi við anddyrið og sjónvarpsherbergi sem hægt er að breyta í svefnherbergi. Garðskáli og bílskúr. Anddyri: Flísar á gólfi og innbyggðir skápar og hirslur. Eldhús: Nútímaleg innrétting í ljósum við og hvítum tónum með góðu vinnuplássi og innbyggðum tækjum. Morgunverðaraðstaða við enda eldhús. Ljóst parket á gólfi og opið flæði inn í borðstofu. Borðstofa: Rúmgóð og björt með ljósu parketi á gólfi, mikilli lofthæð og stórum gluggum sem hleypa inn mikilli dagsbirtu. Tengist eldhúsi og stofum í opnu rými. Tvær samliggjandi stofur; aðalstofa og lægri sjónvarpsstofa með arni. Bjartar og rúmgóðar með ljósu parketi og stórum gluggum. Svefnherbergi I: Eitt svefnherbergi á neðri hæð með parketi á gólfi og góðum hirslum. Sjónvarpshol/skrifstofa/auka herbergi: er milli borðstofu og garðskála. Gestasalerni/Baðherbergi: Nútímalegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni, sturtu og stílhreinni innréttingu úr ljósum við. Þvottahús: Vel útbúið þvottahús með hvítri innréttingu, vinnuborði og rými fyrir þvottavél og þurrkara, auk góðrar geymslu. Flísar á gólfi. Garðskáli: Endurnýjaður árið 2007, bjartur og notalegur, með flísum á gólfi og útgengi á timburpall. Bílskúr: Rúmgóður tvöfaldur bílskúr með nýlegum bílskúrshurðum frá Héðni (fyrir um 10 árum). Efri hæð Svefnálma eignarinnar með 3-4 svefnherbergjum (stóra var 2 herbergi), baðherbergi og opnu sjónvarpsholi. Opið hol/Sjónvarpshol: Bjart og rúmgott rými með mikilli lofthæð og ljósu parketi á gólfi, hentar vel sem sjónvarpshol eða leshorn. Svalir - frá holinu er gengi út á 70 m² þaksvalir sem bjóða upp á marga nýtingarmöguleika. Hjónaherbergi (herbergi II): Stórt og bjart hjónaherbergi með ljósu parketi á gólfi og rennihurðaskápum. Svefnherbergi III og IV. bæði með ljósu parketi á gólfi og góðum hirslum. Hentug sem barnaherbergi eða skrifstofur. Baðherbergi II: Glæsilegt, nútímalegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórum sturtuklefa, upphengdu salerni og stílhreinni innréttingu úr ljósum við. Garður og umhverfi Verönd/Pallur: Sér timburpallur með skjólveggjum, sem býður upp á notalega útiveru. Tengist beint út úr garðskála og frá borðstofu Aðkoma og bílastæði: Góð aðkoma að húsinu með nægum bílastæðum og rúmgóðum tvöföldumbílskúr. Staðsetning: Eignin er staðsett á rólegri og eftirsóttri Selbraut á Seltjarnarnesi, vel þekkt fyrir fjölskylduvænt umhverfi og nálægð við skóla, íþróttasvæði og útivistarmöguleika. Allar frekari upplýsingar um eignina veitir: Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 /

What's included

Garage
Living Area266.9000015258789 m²
Bedrooms5
Bathrooms2
Rooms9
Year Built1979

Location

Map loading soon

Neighborhood data on demand

Nearby essentials will load when this section comes into view.

Listed on

MBL Fasteignir

1.590.511 €

Mortgage calculator

Estimated monthly payment

6.831 €/mo

Down payment20 % · 318.102 €
318.102 €1.272.409 € loan
Term
Total repayable2.459.004 €
Interest rate5.00 %

Representative estimate · Landomo is not a mortgage broker. · Rates updated April 2026

Company

  • About
  • Press
  • Portals

Explore

  • Buy
  • Rent
  • Browse by location
  • Guides
  • Research
  • FAQ
  • Pricing

Legal

  • Privacy Policy
  • Terms of Service
  • Cookie Policy
  • Imprint
landomo.com

© 2026 Landomo Real Estate. All rights reserved.