listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.combeta
Home/Iceland
More listings nearby

House in Njarðvík

House in Njarðvík
House in Njarðvík - Main view

House for sale, 150 m²

Njarðvík

3 bedrooms·2 bathrooms

694.444 €

4.630 €/m²

Listed Oct 7, 2026

About this listing

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna: Álfadalur 11, 260 Reykjanesbær Nýtt og fullbúið fjögurra herbergja raðhús á einni hæð við Álfadal 11 í Reykjanesbæ. Eignin er með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, rúmgóðu opnu alrými og innbyggðri bílgeymslu. Hjónaherbergi er með sér baðherbergi, góðu skápaplássi og útgengi á timburverönd. Gólfhiti er í eigninni, tvö bílastæði eru við húsið og stétt við inngang er upphituð. Eignin getur verið laus fljótlega eftir kaupsamning. Smelltu hér til að fá söluyfirlit. Smelltu hér til að bóka skoðun. Sýnum samdægurs! Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 150,0 m², þar af er íbúð 126,4 m² og bílgeymsla 23,6 m². Eignin er merkt 01-0102, fastanúmer F2541306, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindum. Lýsing og skipulag eignar: Anddyri er flísalagt og með sérsmíðuðum fataskápum. Eldhús og stofa mynda rúmgott og opið alrými. Eldhúsið er með sérsmíðaðri innréttingu, góðu skápaplássi og stórri eyju með helluborði og vinnuaðstöðu. Heimilistæki eru frá AEG og fylgja ofn, helluborð, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Stofa og borðstofa eru í opnu rými með eldhúsi. Stórir gluggar hleypa góðri birtu inn í alrýmið og þaðan er útgengt á timburverönd. Hjónaherbergi er með góðu skápaplássi og sér baðherbergi. Útgengt er frá hjónaherbergi á timburverönd. Tvö önnur svefnherbergi eru í eigninni og eru bæði með fataskápum. Tvö baðherbergi eru í eigninni, þar af annað inn af hjónaherbergi. Bæði eru flísalögð og með sturtuaðstöðu, upphengdu salerni og sérsmíðaðri innréttingu. Sturtur eru með glerþili. Þvottahús er með sérsmíðaðri innréttingu, vaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Þaðan er innangengt í bílgeymslu. Bílgeymsla er innbyggð og innangengt er í hana úr þvottahúsi. Þar er rafdrifin bílskúrshurð. Gólfefni eru parket á meginrýmum og svefnherbergjum en flísar í anddyri, baðherbergjum og þvottahúsi. Byggingarlýsing: Húsið er einnar hæðar timburraðhús. Útveggir eru timburveggir með timburklæðningu og þak er klætt Aluzink-klæðningu. Gluggar og hurðir eru úr timbri með álkápu. Upphitun er með hitaveitu og gólfhita. Útsog er í eldhúsi, baðherbergjum og þvottahúsi. Húsið er hannað með áherslu á gott aðgengi og eru gólfefni lögð án þröskulda milli meginrýma. Lóð og aðkoma: Við hverja eign eru tvö bílastæði. Stétt framan við hús og við inngang er upphituð. Timburverönd er bakatil við húsið og skjólveggir á milli eignarhluta. Sorpgeymsla er innan lóðar. Lóð Álfadals 9–15 er sameiginleg leigulóð og eru sérnotahlutar afmarkaðir innan hennar. Allar nánari upplýsingar veitir: Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér. Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat. Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar. - Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign. Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

What's included

Balcony
Garden
Living Area150 m²
Bedrooms3
Bathrooms2
Rooms4
Year Built2026

Location

Map loading soon

Neighborhood data on demand

Nearby essentials will load when this section comes into view.

Listed on

MBL Fasteignir

694.444 €

Mortgage calculator

Estimated monthly payment

2.982 €/mo

Down payment20 % · 138.889 €
138.889 €555.555 € loan
Term
Total repayable1.073.642 €
Interest rate5.00 %

Representative estimate · Landomo is not a mortgage broker. · Rates updated April 2026

Company

  • About
  • Press
  • Portals

Explore

  • Buy
  • Rent
  • Browse by location
  • Guides
  • Research
  • FAQ

Legal

  • Privacy Policy
  • Terms of Service
  • Cookie Policy
  • Imprint
landomo.com

© 2026 Landomo Real Estate. All rights reserved.