listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.combeta
Home/Iceland
More listings nearby

House in Garðabær

House in Garðabær
House in Garðabær - Main view

House for sale, 233 m²

Garðabær

4 bedrooms·3 bathrooms

1.615.272 €

6.944 €/m²

Listed Sep 23, 2026

About this listing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega vandað og vel staðsett um 280,0 fermetra einbýlishús á pöllum á 1.314,0 fermetra eignarlóð á fallegum útsýnisstað efst á Arnarnesinu, við Þrastanes í Garðabæ. Húsið er teiknað af Óla Jóhanni Ásmundssyni arkitekt og fyrirliggjandi eru samþykktar teikningar af stækkun eignarinnar, tvöföldum bílskúr, íbúðarrými og sólskála. Húsið er byggt á pöllum og eru loft hússins að stórum hluta klædd með gegnheilli kanadískri eik, en gólfefni er að stærstum hluta Norsk skífa. Innihurðir eru vandaðar Norskar eikar-fulningahurðir. Lýsing eignar: Forstofa, rúmgóð og skífa á gólfi. Gestasnyrting, með glugga, skífa á gólfi, panelklæddir veggir, vaskskápar og vegghengt wc. Hol, skífa á gólfi og þaðan gengið inn á gang, upp á efri pall og niður á neðri pall. Gangur, skífa á gólfi og útgengi á hellulagða og skjólsæla verönd til suðurs og þaðan á stóra og fallega lóð. Barnaherbergi I, teppalagt. Barnaherbergi II, teppalagt. Fataherbergi, sem bæði er gengið í af gangi og úr hjónaherbergi, er parketlagt og með glugga. Hjónaherbergi, parketlagt og rúmgott. Baðherbergi, með glugga, skífa á gólfi, vaskskápar og baðkar. Efri pallur sem gengið er á um steyptan skífulagðan stiga úr holi skiptist þannig: Samliggjandi stofur, rúmgóðar og bjartar með fallegum stórum arni og miklu útsýni að Bessastöðum, út á sjóinn, að Snæfellsjökli og víðar. Skífa er á gólfi og útgengi á stórar og skjólsælar svalir til suðvesturs með frábæru útsýni og þaðað niður á verönd. Geymsluloft, er yfir stofum og er lofthæð þar um 190 cm í mæni. Eldhús, bjart, góð borðaðstaða, fallegt útsýni, skífa á gólfi og fallegar upprunalegar viðarinnréttingar. Eyja með helluborði og ágætum hirslum. Búr, innaf eldhúsi er með skífu á gólfi. Neðri pallur, sem gengið er á um steytpan skífulagðan stiga úr holi. Hol, skífulagt og með innbyggðu fatahengi. Herbergi, stórt, teppalagt. Bílskúr, sem innangengt er í er stór og með einni innkeyrsluhurð. Bílskúr er innréttaður að hluta sem íbúðarrými með snyrtingu innaf. Gengið er niður á neðsta pall um steyptan skífulagðan stiga. Þetta rými, sem er um 45 fermetrar að stærð, er óskráð og ekki innifalið í uppgefinni stærð eignarinnar. Þvottaherbergi, stórt, linoleumdúklagt, vaskur, stæði fyrir vélar í vinnuhæð og sturta. Tvær geymslur, innaf þvottaherbergi, rúmgóðar. Húsið að utan lítur vel út og þakjárn hefur verið endurnýjað á austurhlið. Lóðin, sem er 1.314,0 fermetra eignarlóð, er frágengin með tyrfðum flötum, trjágróðri, hellulagðri verönd með skjólveggjum og malarborinni innkeyrslu. Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum, rólegum og grónum útsýnisstað á Arnarnesi. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu

What's included

Balcony
Garden
Living Area232.6 m²
Bedrooms4
Bathrooms3
Rooms7
Year Built1977

Location

Map loading soon

Neighborhood data on demand

Nearby essentials will load when this section comes into view.

Listed on

MBL Fasteignir

1.615.272 €

Mortgage calculator

Estimated monthly payment

6.937 €/mo

Down payment20 % · 323.054 €
323.054 €1.292.218 € loan
Term
Total repayable2.497.286 €
Interest rate5.00 %

Representative estimate · Landomo is not a mortgage broker. · Rates updated April 2026

Company

  • About
  • Press
  • Portals

Explore

  • Buy
  • Rent
  • Browse by location
  • Guides
  • Research
  • FAQ

Legal

  • Privacy Policy
  • Terms of Service
  • Cookie Policy
  • Imprint
landomo.com

© 2026 Landomo Real Estate. All rights reserved.