# einb, Þrastanes 15, Garðabær

> Canonical listing: https://landomo.com/property/a2676f13-ace5-4e1c-8a03-d24b2bd16cd2

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** active
- **Transaction:** sale
- **Category:** house
- **Asking price:** 220,000,000 ISK
- **Location:** Garðabær, IS
- **Floor area:** 232.6 m²
- **Bedrooms:** 4
- **Published:** 2026-10-03T07:52:19.984Z
- **Last updated:** 2026-10-06T09:21:33.786Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega vandað og vel staðsett um 280,0 fermetra einbýlishús á pöllum á 1.314,0 fermetra eignarlóð á fallegum útsýnisstað efst á Arnarnesinu, við Þrastanes í Garðabæ.

Húsið er teiknað af Óla Jóhanni Ásmundssyni arkitekt og fyrirliggjandi eru samþykktar teikningar af stækkun eignarinnar, tvöföldum bílskúr, íbúðarrými og sólskála.

Húsið er byggt á pöllum og eru loft hússins að stórum hluta klædd með gegnheilli kanadískri eik, en gólfefni er að stærstum hluta Norsk skífa. Innihurðir eru vandaðar Norskar eikar-fulningahurðir.

Lýsing eignar:
Forstofa, rúmgóð og skífa á gólfi.
Gestasnyrting, með glugga, skífa á gólfi, panelklæddir veggir, vaskskápar og vegghengt wc.
Hol, skífa á gólfi og þaðan gengið inn á gang, upp á efri pall og niður á neðri pall.
Gangur, skífa á gólfi og útgengi á hellulagða og skjólsæla verönd til suðurs og þaðan á stóra og fallega lóð.
Barnaherbergi I, teppalagt.
Barnaherbergi II, teppalagt.
Fataherbergi, sem bæði er gengið í af gangi og úr hjónaherbergi, er parketlagt og með glugga.
Hjónaherbergi, parketlagt og rúmgott.
Baðherbergi, með glugga, skífa á gólfi, vaskskápar og baðkar.

Efri pallur sem gengið er á um steyptan skífulagðan stiga úr holi skiptist þannig:
Samliggjandi stofur, rúmgóðar og bjartar með fallegum stórum arni og miklu útsýni að Bessastöðum, út á sjóinn, að Snæfellsjökli og víðar. Skífa er á gólfi og útgengi á stórar og skjólsælar svalir til suðvesturs með frábæru útsýni og þaðað niður á verönd.
Geymsluloft, er yfir stofum og er lofthæð þar um 190 cm í mæni.
Eldhús, bjart, góð borðaðstaða, fallegt útsýni, skífa á gólfi og fallegar upprunalegar viðarinnréttingar. Eyja með helluborði og ágætum hirslum.
Búr, innaf eldhúsi er með skífu á gólfi.

Neðri pallur, sem gengið er á um steytpan skífulagðan stiga úr holi.
Hol, skífulagt og með innbyggðu fatahengi.
Herbergi, stórt, teppalagt.
Bílskúr, sem innangengt er í er stór og með einni innkeyrsluhurð. Bílskúr er innréttaður að hluta sem íbúðarrými með snyrtingu innaf.

Gengið er niður á neðsta pall um steyptan skífulagðan stiga. Þetta rými, sem er um 45 fermetrar að stærð, er óskráð og ekki innifalið í uppgefinni stærð eignarinnar.
Þvottaherbergi, stórt, linoleumdúklagt, vaskur, stæði fyrir vélar í vinnuhæð og sturta.
Tvær geymslur, innaf þvottaherbergi, rúmgóðar.

Húsið að utan lítur vel út og þakjárn hefur verið endurnýjað á austurhlið.
Lóðin, sem er 1.314,0 fermetra eignarlóð, er frágengin með tyrfðum flötum, trjágróðri, hellulagðri verönd með skjólveggjum og malarborinni innkeyrslu.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum, rólegum og grónum útsýnisstað á Arnarnesi.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu

## Source and attribution

- Cite and link: https://landomo.com/property/a2676f13-ace5-4e1c-8a03-d24b2bd16cd2
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
