3-bedroom apartment for sale in Spánn - Costa Blanca — 52.700.000 kr. | Landomo
1 of 24
1/24
3-bed apartment for sale, 90 m²
El Barranco E-2, Villa Martín, Orihuela
365.972 €
4.066 €/m²
Listed 31 days ago · Jun 5, 2026
Apartment
Category
90 m²
Area
About this listing
Spánarheimili kynna: Rúmgóða 96fm vel staðsetta íbúð með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Um er að ræða íbúð á jarðhæð með tveimur rúmgóðum veröndöndum önnur er 68 m² og hin 54 m² að stærð.
Íbúðin afhendist með heimilistækjum, loftræstikerfi með loftrásum þegar uppsett. Bílastæði í bílakjalara og geymslu.
Íbúðarkjarninn býður upp á sameiginleg svæði með grænum svæðum. Þar eru einnig þrjár sameiginlegar sundlaugar, ein þeirra yfirbyggð og upphituð. Einnig eru útivistartækiog pétanquebraut til afnota fyrir íbúa.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – svo allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]
---
Eignarnúmer: 2334
Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/170412/ground-floor-apartment-in-villamartin/Show more