listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.combeta
Home/Iceland
More listings nearby

Apartment in Reykjavík, Lækir, Laugardalur

Apartment in Reykjavík, Lækir, Laugardalur
Apartment in Reykjavík, Lækir, Laugardalur - Main view
No longer available

This listing is no longer active. We keep it here for reference, but the details may be out of date.

2-bed apartment for sale, 133 m²

Reykjavík, Lækir, Laugardalur

777.372 €

5.832 €/m²

Listed Oct 16, 2026

About this listing

Miklaborg kynnir: Rúmgóða og sjarmerandi efstu hæð í fallegu húsi við Rauðalæk. Eignin er skráð 133,3 fm og skiptist í tvær stofur, en önnur þeirra gæti nýst sem fjórða svefnherbergið, þrjú svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og gestasnyrtingu. Gott útsýni, tvennar svalir og húsið í góðu viðhaldi, en meðal annars er búið að endurnýja skólplagnir, dren og flesta glugga. Staðsetningin er eftirsótt í vinsælu fjölskylduhverfi. Nánari lýsing. Sameiginlegur inngangur með einni annarri íbúð. Gengið er upp á hæðina, þar sem er stigapallur og útgengi út á litlar svalir sem snúa til suðausturs. Komið er inn í rúmgott hol sem leiðir inn í aðrar vistarverur hæðarinnar. Rúmgóð og björt stofa með gluggum í tvær áttir. Við hlið stofunnar er sjónvarpsstofa, en opið er á milli rýmanna. Lítið mál er að loka á milli þeirra og nýta sjónvarpsstofuna sem fjórða svefnherbergið. Rúmgott svefnherbergi er hinum megin við stofuna. Gestasnyrtingin er með aðgengi úr holi. Hún er að mestu flísalögð og þar er upphengt salerni, innrétting með vaski og opnanlegur gluggi. Eldhúsið er aðgengilegt frá holi. Þar er ljós L-laga viðarinnrétting með bakaraofni í vinnuhæð og góðu borðplássi. Innst í eldhúsinu er borðkrókur og stórir gluggar setja svip sinn á rýmið. Inn af eldhúsinu er rúmgott þvottahús með veglegum innréttingum. Þar er hægt að hafa þvottavél og þurrkara innfellda í innréttingu og gott borðpláss til hliðar. Inn af þvottahúsinu eru svalir sem snúa til norðurs, með góðu plássi fyrir grill og fleira. Geymsluris er aðgengilegt frá þvottahúsinu og nýtist vel fyrir íbúðina. Á herbergjagangi inn af holi eru tvö góð svefnherbergi. Á ganginum eru fataskápar og innst er baðherbergið. Baðherbergið er að mestu flísalagt og þar er baðkar með sturtuaðstöðu, innrétting með vaski og salerni. Gólfefni hæðarinnar eru parket á öllum gólfum nema í baðherbergi, þvottahúsi og eldhúsi, þar sem eru flísar. Í kjallara er geymsla íbúðarinnar, skráð 1,9 fm, en hún er mun stærri að gólffleti þar sem hún liggur undir stiga niður í kjallarann. Helstu endurbætur á eigninni undanfarin ár: Skipt var um þak árið 2009, skipt var um glugga í íbúðinni árið 2019 og húsið múrað og málað á sama tíma, frárennsli og dren endurnýjuð árið 2024. Hægt er að nálgast upplýsingablað seljanda um ástand eignarinnar og húsfélagsyfirlýsingu hjá fasteignasölunni. Mjög góð staðsetning rétt við Laugardalinn. Göngufæri er í Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla, leikskóla og íþróttaaðstöðu Þróttar og Ármanns í Laugardal. Stutt er í Kaffi Laugalæk, Pylsumeistarann, Brauð & Co., Fiskbúðina, Ísbúðina og Laugardalslaugina. Nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða

What's included

Balcony
Area133.3 m²
Rooms3

Location

Map loading soon

Neighborhood data on demand

Nearby essentials will load when this section comes into view.

Listed on

MBL Fasteignir

777.372 €

Mortgage calculator

Estimated monthly payment

3.338 €/mo

Down payment20 % · 155.474 €
155.474 €621.898 € loan
Term
Total repayable1.201.854 €
Interest rate5.00 %

Representative estimate · Landomo is not a mortgage broker. · Rates updated April 2026

Company

  • About
  • Press
  • Portals

Explore

  • Buy
  • Rent
  • Browse by location
  • Guides
  • Research
  • FAQ
  • Pricing

Legal

  • Privacy Policy
  • Terms of Service
  • Cookie Policy
  • Imprint
landomo.com

© 2026 Landomo Real Estate. All rights reserved.