listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.combeta
Home/Iceland
More listings nearby

Apartment in Reykjavík

Apartment in Reykjavík
Apartment in Reykjavík - Main view

2-bed apartment for sale, 106 m²

Reykjavík

2 bedrooms·1 bathroom

644.330 €

6.056 €/m²

Listed Oct 6, 2026

About this listing

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Brekkulæk 1, íbúð 201, 105 Reykjavík: Um er að ræða bjarta og vel skipulagða 3ja til 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýlishúsi í Lauganeshverfinu. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá er 106,4 fm. þ.a. er 11,5 fm. geymsla í kjallara. Eignin er staðsett á frábærum stað miðsvæðis rétt hjá Laugardalnum og stutt er í skóla, leikskóla, sund, líkamsrækt og helstu þjónustu. Íbúðin var teiknuð og byggð sem 4ra herbergja en skipulag eignarinnar er talsvert breytt frá upphaflegu skipulagi og á einhverjum tímapunkti hefur verið bætt við stofurýmið á kostnað eins svefnherbergis. SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX Eignin skiptist í gang / hol, nýlegt eldhús með borðkrók, stofu / borðstofu með útgengi út á stórar norðaustur svalir, tvö svefnherbergi, baðherbergi, 11,5 fm. geymslu í kjallara og sameiginlegt þvottahús með íbúðinni á efstu hæðinni. Bílastæði fyrir húsið eru á lóðinni. Nánari lýsing eignar: Gangur / hol: Komið er inn gang / hol sem tengir saman rými íbúðarinnar, parket á gólfi. Fram á stigagangi er fatahengi. Stofa / borðstofa: Tvær samliggjandi stofur. Önnur er rúmgóð og nýtt sem borðstofa í dag og er með útgengi á stórar norðaustur svalir með útsýni m.a. yfir Esjuna. Eldhús: Glæsilegt eldhús með hvítri innréttingu, eldavél, ísskápur sem fylgir með, innbyggð uppþvottavél, borðkrókur með eldhúsbekk, flísadúkur á vegg hægra megin, parket á gólfi. Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með innbyggðum fataskápum og fataskáp, parket á gólfi. Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi, parket á gólfi. Baðherbergi: Glæsilegt baðherbergi er með hvítri innréttingu, speglaskápur og viðar veggskáp, sturtubaðker, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum að hluta. Geymsla: Í kjallara er 11,5 fm sér geymsla. Sameign: Í sameign í kjallara er sameiginlegt þvottahús með einni annarri íbúð. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á fyrstu hæð. Húsið: Í húsinu eru alls níu íbúðir. Í stigaganginum eru tvær íbúðir og er gengið inn um hann að sunnanverðu. Lóðin: Sameiginleg 1453 fm lóð. Innkeyrsla er steypt svo og framan við anddyri. Bílaplan er á lóð. Staðsetning: Smellið hér. Búið er að endurnýja þó nokkuð að utan og íbúðina að innan m.a.: * 2024 voru settar snjógildrur á þakið. * 2022-2023 Skipt hefur verið um glugga á austurhlið hússins (framhlið). * 2019-2020 Var húsið múrviðgert, málað og skipt um klæðningu á jarðhæð. Gluggar, handrið og grindverk lagað og málað. Einnig var nýtt steinhandrið sett að framan á 2. hæð hússins. * 2011 Skolplagnir myndaðar og metnar í góðu lagi. * 2009 Þakjárn endurnýjað. * Skipt hefur verið um ofna og lagnir í íbúðinni. * Rafmagnið var allt tekið í gegn í íbúðinni 2022. Dregið nýtt í töflu og nýir rofar og tenglar. Falleg fjölskyldueign á góðum stað rétt við Laugardalinn - Eign sem vert er að skoða. Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða . ---------------------------------------------------------- Heimasíða Helgafells fasteignasölu Facebook síða Helgafells - Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu - Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk. Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

What's included

Balcony
Area106.4 m²
Rooms4
Bedrooms2
Bathrooms1
SubtypeApartment

Location

Map loading soon

Neighborhood data on demand

Nearby essentials will load when this section comes into view.

Listed on

MBL Fasteignir

644.330 €

Fasteignaleitin

644.330 €

Mortgage calculator

Estimated monthly payment

2.767 €/mo

Down payment20 % · 128.866 €
128.866 €515.464 € loan
Term
Total repayable996.164 €
Interest rate5.00 %

Representative estimate · Landomo is not a mortgage broker. · Rates updated April 2026

Company

  • About
  • Press
  • Portals

Explore

  • Buy
  • Rent
  • Browse by location
  • Guides
  • Research
  • FAQ

Legal

  • Privacy Policy
  • Terms of Service
  • Cookie Policy
  • Imprint
landomo.com

© 2026 Landomo Real Estate. All rights reserved.