# fjolb, Garðabraut 1 íb205, Akranes

> Canonical listing: https://landomo.com/property/d209f222-c4c3-4205-bcdf-e0d5ae13d28e

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** removed
- **Transaction:** sale
- **Category:** apartment
- **Asking price:** 57,400,000 ISK
- **Location:** Akranes, IS
- **Floor area:** 65.5 m²
- **Bedrooms:** 1
- **Published:** 2026-05-17T07:20:16.825Z
- **Last updated:** 2026-06-15T18:14:10.214Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Háborg fasteignasala og Bestla byggingarfélag kynna: Garðabraut 1 Akranesi – í nýju og glæsilegu íbúðarhverfi. Húsið er lyftuhús með bílageymslu.

Íbúð 205 – Tveggja herbergja íbúð á 2.hæð, staðsett í nýju og glæsilegu íbúðarhverfi. Að stærð 65,5 þar af er geymsla 6,8 fm, einnig fylgir eigninni stæði í bílakjallara. Íbúðin skipar forstofu, innaf forstofu er baðherbergi með góðri snyrtiaðstöðu og með þvotta aðstöðu,  hol, hjónaherbergi og alrými opið með eldhúsi, borðstofu og stofu. Útgengt út á svalir úr stofu að stærð 6,6 fm með 0,9 fm geymslu.
Íbúðin skilast fullbúin án megin gólfefna, nema í votrými eru flísar.  Áætluð afhending í september 2025.
Helstu kostir íbúðar.Aukin lofthæðSvalirInnrétting í eldhúsi frá GKS/NobiliaEldhúsið með HPL borðplötu og tækjum frá AEG.Votrými flísalögðBirtugæði og loftgæðiNýtt glæsilegt íbúðarhverfiVandaður verktakiÁhersla er lögð á gott skipulag, vandað efnisval, fallegt útlit, birtugæði og loftgæði. Áhersla lögð á vandað efnisval og rýmisnýtingu. 
Heimasíða Garðabraut 1

Allar upplýsingar um eignina veita: Katla Hanna Steed löggiltur fasteignasali í síma 822 1661 eða , Jórunn Skúladóttir löggiltur fasteignasali í síma 845 8958 eða og Kristín Rós Magnadóttir löggiltur fasteignasali í síma 860-2078 eða . 
 
Almennt Fjölbýlishúsið að Garðabraut er staðsett í nýju og glæsilegu íbúðarhverfi á Akranesi. Tvö stigahús eru í byggingunni, hvort með lyftu og kjallara. Byggingin er 4 og 7 hæðir með samtals 50 íbúðum af mismunandi stærðum – tveggja, þriggja og fjögurra herbergja.  Í kjallara er bílageymsla með merktum stæðum fyrir flestar íbúðir. Aðgengi að sérgeymslum, hjóla- og vagnageymslu, ásamt tæknirýmum. Aðalinngangur hússins er á 1. hæð. Flestar íbúðir eru með aukinni lofthæð og allar með svölum eða sérafnotareit. Úr mörgum íbúðum er fallegt útsýni og þakíbúðir bjóða upp á stórar þaksvalir með möguleika á rafmagnspotti. Flestum íbúðum fylgir stæði í bílakjallara og stærri íbúðum fylgja tvö stæði.
Á Lóð eru hellulögð svæði og hitalagnir í gönguleiðum og bílastæðum fyrir hreyfihamlaða. Undirbúið er fyrir rafhleðslustöðvar og djúpgámar eru staðsettir á lóðinni.
Eldhús eru með innréttingum frá GKS/Nobilia í ljósgráum lit. Efri skápar eru vegghengdir með LED-lýsingu undir. Borðplötur eru úr HPL. Eldhústæki frá AEG fylgja – spanhelluborð og bakarofn með innbyggðum hitamæli. Gufugleypir er annaðhvort innbyggður í efri skáp eða sem eyju-/veggháfur frá Airforce/Elica. Gert er ráð fyrir innbyggðum kæli, frysti og uppþvottavél og fylgja hurðaforstykki í stíl. Blöndunartæki frá Grohe eru hitastýrð og vaskur úr stáli er límdur ofan á borðplötuna.
Baðherbergi eru flísalögð, gólf eru flísalögð með 60x60 cm flísum og hluti veggja flísalagður upp í loft. Innréttingar eru í ljósgráum lit með slitsterkri HPL borðplötu og hvítum vaski. Grohe blöndunartæki eru hitastýrð og sturtan afmörkuð með gleri. Salerni er vegghengt með innbyggðum vatnskassa.
Þvottahús Í sumum íbúðum er sér þvottaaðstaða, annars er hún inn af baðherbergi. Tengi eru fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara með rakaþétti. Gólf er flísalagt.
Hita- og loftræstikerfi. Íbúðir og sameign eru hitaðar með ofnakerfi samkvæmt teikningum. Allar íbúðir eru með loftræstikerfi með varmaendurvinnslu, þar sem loft er sogið úr eldhúsi og baðherbergi og ferskt loft dælt inn í önnur rými. Kerfið endurvinnur allt að 85% varma og síar loftið, sem dregur úr svifryki og frjókornum. Loftræstisamstæður eru staðsettar á svölum.

Allar nánari upplýsingar veita Katla Hanna Steed löggiltur fasteignasali í síma 822 1661 eða , Jórunn Skúladóttir löggiltur fasteignasali í síma 845 8958 eða og Kristín Rós Magnadóttir löggiltur fasteignasali í síma 860-2078 eða .

## Source and attribution

- Cite and link: https://landomo.com/property/d209f222-c4c3-4205-bcdf-e0d5ae13d28e
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
