# fjolb, Hafnarbraut 18, Kópavogur

> Canonical listing: https://landomo.com/property/d8df6f63-c8d1-45c7-8d17-4e602d8a3aa7

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** active
- **Transaction:** sale
- **Category:** apartment
- **Asking price:** 89,900,000 ISK
- **Location:** Kársnes, Kópavogur, IS
- **Floor area:** 87.9 m²
- **Bedrooms:** 2
- **Published:** 2026-08-12T11:00:21.550Z
- **Last updated:** 2026-09-14T10:50:52.437Z
- **Listed on:** mbl-is, fasteignaleitin-is

## Description

RE/MAX kynnir með stolti: Hafnarbraut 18. Vandaðar og glæsilegar íbúðir í nýju og fallegu fjölbýlishúsi við sjávarsíðuna á Kársnesi, 200 Kópavogi.

⭐️ Fjölbreyttar stærðir og gerðir frá 48 til 194 fm. Stæði í bílageymslu fylgir flestum íbúðum.
⭐️ Íbúðirnar skilast fullbúnar með parketi. Sérsmíðaðar innréttingar frá Brúnás. Vönduð eldhústæki og sjálfstætt loftskiptikerfi. Aukin lofthæð, 270-290 cm.

Íbúð 106: Vel skipulögð og björt þriggja herbergja, 87,9 fm íbúð á jarðhæð ásamt stæði í bílageymslu. Rúmgóður 12,24 fm sérafnotareitur með vönduðum bambus timburpalli. Sér þvottahús innan íbúðar með veglegri innréttingu. Sér 8,9 m2 geymsla í sameign.

⭐️ Kynningarvefur hússins ⭐️

Bókið skoðun, sýnum alla daga
Þorsteinn Yngvason, Lögmaður/löggiltur fasteignasali, í síma 696-0226 / 
Elvar Frímann Frímannsson, Löggiltur fasteignasali, í síma 659-6606 / 
Guðmundur Þór Júlíusson, Löggiltur fasteignasali, í síma 858-7410 / 

Ending og gæði voru höfð að leiðarljósi við allt efnisval og frágang hússins. Hér eru helstu kostir við frágang:
✅ Sjálfstætt loftskiptikerfi í öllum íbúðum
✅ Sérsmíðaðar innréttingar, framleiddar og uppsettar af Brúnaás.
✅ Ítalskar kvarts borðplötur á eldhúsum og baðherbergjum
✅ Aukin lofthæð í öllum íbúðum, 270 – 290 cm
✅ Innbyggður kæliskápur og uppþvottavél. Hreinlætistæki frá Grohe
✅ Vönduð og falleg álklæðning sem veðurkápa
✅ Sér þvottahús í flestum íbúðum
✅ Svalagólf og sérafnotareitir skilast með viðhaldsléttu Bambus pallaefni
✅ Vönduð svalalokun/skýli í völdum íbúðum

Húsið:
Hafnarbraut 18 er vandað og einstaklega vel staðsett fjölbýlishús við sjávarsíðuna á vestanverðu Kársnesinu í námunda við fyrirhugaða Fossvogsbrú sem mun, ásamt Borgarlínustöð, skapa sterka tengingu við Öskjuhlíð, háskólasvæðin, Reykjavíkurflugvöll og miðborg Reykjavíkur. Húsbyggingin er fimm hæðir á niðurgröfnum kjallara þar sem eru bílastæði, sérgeymslur, sameiginlegar reiðhjóla- og vagnageymslur og tæknirými. Á íbúðahæðunum fyrir ofan eru 52 fjölbreyttar íbúðir af mismunandi gerð, stærð og herbergjafjölda. Byggingin er hönnuð fyrir fjölbreyttan markhóp íbúa, allt frá sérhönnuðum stúdíóíbúðum til rúmgóðra fjölskylduíbúða. Byggingaraðili/aðalverktaki er Brúarbyggð ehf.

⭐️ Skilalýsing og tækjalisti seljanda ⭐️

Hönnun:
Arkitektar og aðalhönnuðir eru Skala: arkitektar
Burðarþolshönnun: Verkfræðistofan Víðsjá
Lagna- og loftræstihönnun: Verkfræðistofan Víðsjá
Raflagnahönnun: Sturla Snorrason
Hljóðvistarhönnun: Myrra hljóðstofa
Eldvarnahönnun: ÖRUGG verkfræðistofa
Landslagshönnun og innanhússhönnun: Skala: arkitektar

Umhverfið:
Hverfið er rólegt og gróið og býr yfir miklum náttúrutöfrum. Skólar eru í næsta nágrenni og í göngu fjarlægð er bæði Sky lagoon og sundlaug Kópavogs. Þá eru nærri verslanir, heilbrigðisþjónusta að ógleymdum menningarperlum Kópavogs, Gerðasafni, Salnum og Kópavogskirkju sem er eitt af kennileitum bæjarins. Stutt er í matvöruverslanir og alla helstu þjónustu. Kársnesið er með fjölda göngu- og hjólastíga sem tengist hvort sem er til Reykjavíkur eða inn í Kópavoginn. Einstök staðsetning fyrir þá sem elska að horfa út á hafið og njóta þess að vera með bát í höfn.

Skipulagsgjald: Kaupendur greiða álagt skipilagsgjald við endanlega útgáfu brunabótamats sem nemur 0,3% af heildarmati.

## Source and attribution

- Cite and link: https://landomo.com/property/d8df6f63-c8d1-45c7-8d17-4e602d8a3aa7
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
