landomo.cz
//Reykjavík
fjolb, Eirhöfði 7D íb.413, Reykjavík
1 of 49
fjolb, Eirhöfði 7D íb.413, Reykjavík - Main view
1/49

2-bed apartment for sale, 126 m²

Höfðar, Grafarvogur, Reykjavík

27 829 694 Kč

221 574 Kč/m²

Listed 10 days ago · 21 Jun 2026

Apartment

Category

125.6 m²

Area

About this listing

Elka Guðmundsdóttir lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna glæsilegar nýbyggingar við Eirhöfða 7 á Ártúnshöfða – einstakt tækifæri til að eignast heimili í einu metnaðarfyllsta uppbyggingarsvæði Reykjavíkur. Ártúnshöfði stendur á tímamótum. Þar er að rísa nýr og spennandi borgarhluti þar sem nútímaleg byggð, fallegt borgarumhverfi og framúrskarandi samgöngur mynda grunn að eftirsóttu framtíðarhverfi. Eirhöfði 7 er hluti af þessari umbreytingu og býður upp á fjölbreytt úrval vandaðra íbúða þar sem hönnun, gæði og staðsetning fara saman. Heimasíða verkefnisins - smella hér! Við Eirhöfða 7 býðst kaupendum að nýta sér UMBRA20 fjármögnunarleiðina, sem getur auðveldað leiðina að eigin húsnæði með aðeins 10% útborgun. Nánari upplýsingar má finna á UMBRA20 Íbúð 413 er glæsileg 3ja herbergja íbúð á 4. hæð, samtals 125,6 fm að stærð, þar af sérgeymsla 13 fm. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, opið og bjart alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, baðherbergi, sér þvottahús og anddyri með góðu skápaplássi. Við hönnun íbúðarinnar hefur verið lögð sérstök áhersla á rými, birtu og þægilegt skipulag. Alrýmið er hjarta heimilisins þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda rúmgott og samfelldt rými með stórum gluggaflötum sem hleypa inn mikilli dagsbirtu og með glæsilegu útsýni. . Eldhúsið er búið fallegri eyju sem tengir saman rýmin og skapar frábæra aðstöðu til samveru. Baðherbergið er rúmgott og vel staðsett við herbergjagang ásamt sér þvottahúsi. Frá stofu er gengið út á 72 fm þaksvalir með glæsilegu útsýni. Innréttingar eru í Dökk eik litaþema frá Voké-III sem gefur íbúðinni hlýlegt og fágað yfirbragð. Quartz borðplötur, Miele heimilistæki og GROHE blöndunartæki undirstrika gæði eignarinnar. Baðherbergi eru flísalögð og vélræn loftræsting tryggir heilnæmt inniloft og aukin þægindi. Athugið: Myndir í auglýsingu eru teknar í sýningaríbúð verkefnisins og eru ekki af þeirri íbúð sem hér er til sölu. Húsin standa á Hamrinum, einum hæsta og glæsilegasta stað Ártúnshöfða, með stórbrotnu útsýni yfir Reykjavík, Elliðaárvog, Esjuna og nærliggjandi náttúru. Hér njóta íbúar bæði nálægðar við borgarlífið og einstakrar tengingar við útivistarsvæði Elliðaárdals, strandstíga og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir. Við hönnun verkefnisins hefur verið lögð sérstök áhersla á nútímalegan arkitektúr, vandaðan frágang og vel skipulagðar íbúðir sem henta jafnt einstaklingum, pörum og fjölskyldum. Sameiginleg svæði eru hönnuð með þægindi og samfélag í huga og undir húsunum er bílakjallari með góðu aðgengi að íbúðum. Íbúðirnar einkennast af björtu og opnu skipulagi, stórum gluggaflötum og vönduðum efnisvali. Sérsmíðaðar innréttingar, gæða heimilistæki og nútímalegar lausnir. Á næstu árum mun Ártúnshöfði þróast í eftirsótt íbúðasvæði með verslun, þjónustu, veitingastöðum, almenningssamgöngum og fjölbreyttu mannlífi í göngufæri. Hér gefst einstakt tækifæri til að kaupa í framtíðarsvæði Reykjavíkur á meðan uppbyggingin er rétt að hefjast. Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur [email protected]. Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis: Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

What's included

Garage

Key Stats

Area125.6 m²
Rooms3
Bedrooms0
Bathrooms0.0
GarageYes

Listed on

Synced 11 hours ago

Mbl Is

27 829 694 Kč

Estimate

Investment economics

Estimated gross return if you let this apartment

Map

Location

Approximate location based on the listing area.

Reykjavík
Map Explorer

Map loading soon

Neighborhood data will appear when this section is in view.

Neighborhood

Nearby essentials

Approximate distances based on the listing area.

Reykjavík

Neighborhood data on demand

Nearby essentials will load when this section comes into view.

Financing

Mortgage calculator

Estimated monthly payment

708.605 kr./mo

5.00 % rateAPR 5.86 %
Down 20%Loan 80%
33.000.000 kr.132.000.000 kr. loan
Total repayable255.097.635 kr.
Interest rate5.00 %
APR5.86 %

Representative estimate · Landomo is not a mortgage broker.

Nearby match

Similar properties nearby

Comparable listings around this location, ranked by distance, layout, size, and price.

from 10 m
fjölbýlishús - Eirhöfði 7a (301) - Reykjavík, Reykjavík
1/7
SALE
3-bed apartment, 137 m²
Reykjavík
23 933 537 Kč
174 316 Kč/m²
10 m
fjolb, Eirhöfði 7A - 201, Reykjavík, Reykjavík
1/7
SALE
3-bed apartment, 136 m²
Reykjavík
23 090 213 Kč
169 283 Kč/m²
10 m
fjolb, Eirhöfði 7A íb.201, Reykjavík, Reykjavík
1/7
SALE
Apartment, 136 m²
Reykjavík
23 090 213 Kč
169 283 Kč/m²
10 m
fjölbýlishús - Eirhöfði 7a (101) - Reykjavík, Reykjavík
1/7
SALE
3-bed apartment, 137 m²
Reykjavík
22 584 218 Kč
165 089 Kč/m²
10 m
fjolb, Eirhöfði 7a (101), Reykjavík, Reykjavík
1/7
SALE
3-bed apartment, 137 m²
Reykjavík
22 584 218 Kč
165 089 Kč/m²
10 m
fjölbýlishús - Eirhöfði 7a (001) - Reykjavík, Reykjavík
1/7
SALE
3-bed apartment, 130 m²
Reykjavík
22 584 218 Kč
173 192 Kč/m²
10 m
fjolb, Eirhöfði 7B íb.703, Reykjavík, Reykjavík
1/7
SALE
Apartment, 191 m²
Reykjavík
34 576 287 Kč
181 217 Kč/m²
10 m
fjolb, Eirhöfði 7D íb.414, Reykjavík, Reykjavík
1/7
SALE
2-bed apartment, 112 m²
Reykjavík
19 716 917 Kč
175 730 Kč/m²
10 m

© 2026 Landomo. All rights reserved.

Map Explorer
Home
Apartment