listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.combeta
Home/Iceland
More listings nearby

Apartment in Njarðvík

Apartment in Njarðvík
Apartment in Njarðvík - Main view

3-bed apartment for sale, 85 m²

Njarðvík

458.211 €

5.365 €/m²

Listed Oct 8, 2026

About this listing

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu bjarta og glæsilega fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í nýlegu lyftuhúsi að Dalsbraut 1, Reykjanesbæ. Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, ásamt stofu og eldhúsi í björtu, opnu alrými. Gólfsíðir gluggar prýða alrýmið og þaðan er útgengt á hellulagða verönd. Eigninni fylgir 5,0 fm sérgeymsla í sameign ásamt merktu bílastæði á lóð. ***Eignin getur verið laus við kaupsamning Nánari lýsing Forstofa: Flísar á gólfi og góður forstofuskápur. Eldhús: Grár og stílhrein innrétting með innbyggðum ísskáp, uppþvottavél og bakarofni í vinnuhæð. Parket á gólfi. Stofa og borðstofa: Bjart alrými í samflæði við eldhús. Fallegir gólfsíðir gluggar hleypa mikilli dagsbirtu inn og útgengt er á hellulagða verönd. Parket á gólfi. Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með parketi á gólfi og góðum fataskáp. Barnaherbergi I: Parket á gólfi og fataskápur. Barnaherbergi II: Parket á gólfi. Baðherbergi / þvottaaðstaða: Flísalagt í hólf og gólf með gráum flísum. Dökkgrá innrétting við vask, speglaskápur, upphengt salerni, handklæðaofn og rúmgóð „walk-in“ sturta. Aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara inni á baðherberginu. Sérgeymsla: 5,0 fm sérgeymsla staðsett í sameign hússins. Bílastæði: Eigninni fylgir sérstaklega merkt bílastæði á bílaplani. ***Nýlegt hús byggt árið 2023 ***Jarðhæð með sérinngang ***Gólfsíðir gluggar í stofu sem skapa mikla birtu og rúmtilfinningu. ***Þrjú svefnherbergi og vandaðar innréttingar. ***Merkt bílastæði og sérgeymsla fylgja eigninni. ***Stapaskólahverfi – Frábær staðsetning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, sundlaug, íþróttamiðstöð, bókasafn og verslun. Dalsbraut 1 er vandað þriggja hæða steinsteypt fjölbýlishús byggt árið 2023, teiknað af JeES arkitektum. Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir loftræstri álklæðningu ásamt viðarklæðningu að hluta sem tryggir lítið viðhald. Gluggar og útihurðir eru úr tré og áli. Í húsinu er lyfta og upphitun er með ofnum. Eigninni fylgir sérafnotaflötur á lóð fyrir verönd samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er lokuð og upphituð. Sorpkerfi er í snyrtilegum djúpgámum á lóð. Virkilega falleg og vönduð fjölskylduíbúð á eftirsóttum og barnvænum stað í Dalshverfi sem vert er að skoða! Allar nánari upplýsingar veita: Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali 420-4030 / 860-6886 Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali 420-4030 / 899-1298 Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: * Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila. * Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. * Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. * Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Area85.4 m²
Rooms4

Location

Map loading soon

Neighborhood data on demand

Nearby essentials will load when this section comes into view.

Listed on

MBL Fasteignir

458.211 €

Mortgage calculator

Estimated monthly payment

1.968 €/mo

Down payment20 % · 91.642 €
91.642 €366.569 € loan
Term
Total repayable708.416 €
Interest rate5.00 %

Representative estimate · Landomo is not a mortgage broker. · Rates updated April 2026

Company

  • About
  • Press
  • Portals

Explore

  • Buy
  • Rent
  • Browse by location
  • Guides
  • Research
  • FAQ

Legal

  • Privacy Policy
  • Terms of Service
  • Cookie Policy
  • Imprint
landomo.com

© 2026 Landomo Real Estate. All rights reserved.