listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.combeta
Home/Iceland
More listings nearby

House in Vestmannaeyjar

House in Vestmannaeyjar
House in Vestmannaeyjar - Main view

House for sale, 101 m²

Vestmannaeyjar

1 bedroom·1 bathroom

475.806 €

4.702 €/m²

Listed Sep 22, 2026

About this listing

Nýuppgerð fasteign með tveimur leigueiningum á besta stað í bænum, samtals 120.7 m2 (gólfflötur) Heimaey fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Strandveg 39, VM (Strandberg). FNR: 218-4754. Eignin er skráð 101,2 m2 á 2 hæðum, en einnig er óskráð 19.5 m2 svefnloft og er því ekki inni í heildarfermetrafjölda eignar (samtals 120.7 m2) . Eignin er byggð úr steini/timbri árið 1908 og gæti fallið undir húsfriðun Eignin er á besta stað í bænum og hefur farið í gegnum miklar endurbætur undanfarið ár (sjá lista neðar í lýsingunni). Athugið að núverandi myndir eru frá því að eign var í skammtímaleigu (vantar mynd af neðstu hæð) en nýjar eftir breytingar eru væntanlegar. Eignin skiptist í tvö rými með sitthvorum innganginum: ​Jarðhæð 50,6 m2: Endurnýjað og innréttað rými sem er leigurými í dag, en þar er salur með nýju salerni og vaski ásamt nýrri hitaveitugrind fyrir húsið. Nýbúið er að flota gólfið ásamt því að skipta um veggklæðningu á austur- og suðurhlið. ​Efri hæð: Nýuppgerð íbúð með sérinngangi sem skiptist í 50,6m2 hæð og 19.5m2 svefnloft. Gengið er inn í forstofu með nýlegri innréttingu ásamt þvottavél og þurrkara. Þar innan af er gengið inn í baðherbergi sem er uppgert að hluta til með nýjum blöndunartækjum, nýju salerni og nýjum sturtuklefa. Þaðan er gengið inn í opið rými sem inniheldur stofu, eldhús og eitt svefnherbergi. Eldhúsið er nýlegt með innréttingu frá Ikea og fylgja tæki með í kaupunum. Nýtt parket er á allri hæðinni. Einnig er búið að skipta um nýtt rafmagn að hluta til í eigninni. Efsta hæð hússins er rúmgott 19.5 m2 svefnloft með góðri lofthæð. Hægt að skipta upp í tvö rými eða fleiri. Nýtt parket, nýir veggir, ný klæðning, nýtt þak, nýir burðarbitar í þaki. Frábær fjárfesting sem vilja eiga íbúð í Vestmannaeyjum og fá innkomu af neðri hæðinni eða fyrir þá sem vilja leigja út 2 leigueiningar. Jarðhæðin er með virkum leigusamningi við fyrirtæki í atvinnurekstri en íbúð efri hæðar var í langtímaleigu Eign á frábærum stað í hjarta miðbæjarins. Stutt í alla þjónustu, 80 metrar í Bónus, 120 metrar í Krónuna og aðra mikilvæga þjónustu. Það er ekki oft sem koma svona eignir í hjarta bæjarins á sölu. Vinna sem hefur farið fram í eigninni undanfarin ár en áætlaður kostnaður við betrumbætur og viðgerðir 2026 er rétt undir 15.000.000. 2026 - Framkvæmdir Neðsta hæð (Verklok Ágúst 2026) Járnbitar settir upp til að styrkja burð á gólfi Járnbiti klæddur með plötum Baðherbergisveggir styrktir með frekari burði fyrir gólf Nýjar loftaplötur uppsettar Miðhæð (Verklok Sept 2026) Nýtt parket og listar Burður fyrir gólf á risi betrumbætt Veggir á herbergi styrktir með frekari burð fyrir gólf Ný klæðning á ytri veggi í herbergi Gluggakistur málaðar að innan Nýjar loftaplötur uppsettar Ný einangrun í gólfi Flotað og parketlagt Veggir málaðir Nýjar innihurðar Ris (verklok sept 2026) Nýtt parket og listar Burðarbitum fyrir gólf fjölgað Allt nýtt á veggjum Veggir málaðir Þak (verklok Júlí 2026) Alveg nýtt þak sett upp Öllum þaksperrum og lektum skipt út fyrir nýjar Ný einangrun í þaki Veggur (verklok Júní 2026) Veggur sem snýr að Bónus var múraður upp á nýtt 2024 - Framkvæmdir Skipt var um 2 glugga árið 2024 Skipt var um pappa og járn á neðra þaki við inngang til vesturs árið 2024 Tröppur utanhúss lagfærðar 2024 og rennur hreinsaðar á sama tíma. Nýr sturtuklefi settur upp Skipt um nýtt rafmagn að hluta til í eigninni 2018 > 2023 - Framkvæmdir Nýtt eldhús sett upp Ný innrétting fyrir þvottavél og þurrkara sett upp Ný hitaveitugrind sett upp Gólf flotað Skipt um veggklæðningu á austur- og suðurhlið. Ný blönduartæki og salerni sett upp Nýjar fráveitulagnir inn í hús Skipt um glugga sem snýr í vestur Mikið endurnýjuð eign í hjarta miðbæjarins. Eign sem vert er að skoða betur. Nánari upplýsingar gefur Guðjón Hjörleifsson löggiltur fasteignasali s: 895 2548 eða email:

What's included

Garden
Living Area101.2 m²
Bedrooms1
Bathrooms1
Rooms2
Year Built1908

Location

Map loading soon

Neighborhood data on demand

Nearby essentials will load when this section comes into view.

Listed on

MBL Fasteignir

475.806 €

Mortgage calculator

Estimated monthly payment

2.043 €/mo

Down payment20 % · 95.161 €
95.161 €380.645 € loan
Term
Total repayable735.618 €
Interest rate5.00 %

Representative estimate · Landomo is not a mortgage broker. · Rates updated April 2026

Company

  • About
  • Press
  • Portals

Explore

  • Buy
  • Rent
  • Browse by location
  • Guides
  • Research
  • FAQ

Legal

  • Privacy Policy
  • Terms of Service
  • Cookie Policy
  • Imprint
landomo.com

© 2026 Landomo Real Estate. All rights reserved.