listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.combeta
Home/Iceland
More listings nearby

House in Reykjavík

House in Reykjavík
House in Reykjavík - Main view

House for sale, 155 m²

Reykjavík

4 bedrooms·3 bathrooms

1.241.959 €

8.007 €/m²

Listed Oct 8, 2026

About this listing

Eignamiðlun kynnir: Afar fallegt og vel við haldið 136,4 fm einbýlishús með aukaíbúð í hjarta miðborgarinnar. Að auki er sérstæð 18,7 fm vinnustofa/gestahús á lóð sem ekki er skráð. Samtals 155,1 fm. Húsið hefur verið mikið endurnýjað á undanförnum árum með afar smekklegum hætti og með virðingu fyrir aldri og anda hússins. Fallegur panill, loft- og gólflistar, rósettur í loftum og pólýhúðaðir pottjárnsofnar setja svip sinn á eignina. Lóðin er afgirt með sólríkum, hellulögðum bakgarði og fallegu, upphituðu Serralux gróðurhúsi. Bílastæði með rafknúnu hliði er á lóð þar sem auðveldlega komast tveir bílar fyrir. Eignin er skráð á tveimur fastanúmerum. Efri hæð og ris eru skráð 87,3 fm og telja eldhús, stofur, gestasnyrtingu, tvö-þrjú svefnherbergi og baðherbergi auk geymslulofts. Á jarðhæð er 49,1 fm tveggja herbergja íbúð með sérinngangi. Íbúðin telur eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi. Á baklóð er 18,7 fm sérstæð vinnustofa/gestahús sem ekki er inni í skráðum fermetrum. Húsið nýtist í dag sem gestahús, þvottahús og geymsla. Nánari upplýsingar veitir Lilja í s. 649-3868 eða **Sækja söluyfirlit** Nánari lýsing: Efri hæð: Gengið er inn frá bakgarði. Falleg aðkoma og verönd við inngang. Komið er inn í forstofu með fallegum flísum á gólfi og fatahengi. Inn af forstofu er gestasnyrting sem nýlega hefur verið standsett. Fallegar flísar á gólfi og glæsilegur marmaravaskur. Salerni og blöndunartæki eru frá Burlington. Úr forstofunni er gengið inn í meginrýmið en þar eru eldhús, stofa og borðstofa. Eldhús er rúmgott og bjart með fallegri innréttingu sem fellur vel að stíl hússins og innbyggðum ískáp og uppþvottavél. Ofn, gashelluborð og háfur frá SMEG. Innrétting og tæki voru endurnýjuð 2016. Stofan og borðstofan eru í samliggjandi rými með glugga í þrjár áttir. Upprunalegar gólffjalir eru á gólfum hæðar. Rishæð: Gengið er um teppalagðan stiga upp á efri hæð. Hjónaherbergi er mjög rúmgott með aukinni lofthæð þar sem loftbitarnir fá að njóta sín. Að auki eru tvö herbergi til viðbótar í risinu. Annað ágætt með nýlegu teppi á gólfi. Hitt minna og nýtist í dag sem fataherbergi. Bjart og fallegt baðherbergi er á hæðinni. Flísalagt í hólf og gólf með baðkari m/sturtuaðstöðu, góðum glugga og handklæðaofni. Nýleg innrétting með handlaug. Salerni, handlaug og blöndunartæki eru frá Burlington og falla afar vel að anda hússins. Upprunalegar gólffjalir eru á gólfum hæðar. Geymsluloft er yfir risi með niðurdraganlegum stiga. Jarðhæð: Á jarðhæð er tveggja herbergja íbúð með sérinngangi. Íbúðin var tekin til gagngerra endurbóta fyrir tveimur árum. Gólfhiti var lagður og gólf flotað. Nýtt parket á gólfum, ný eldhúsinnrétting og baðherbergi endurgert. Eldhús er rúmgott með góðri innréttingu. Stofu og svefnherbergi er skipt upp með veglegri, glerjaðri járnrennihurð. Fallegur arinn er í stofu. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með walk-in sturtu og upphengdu salerni og handlaug frá Burlington. Bakhús: Á baklóð er 18,7 fm sérstæð, upphituð, arkitektateiknuð vinnustofa og geymsla. Húsið er utan skráðra fermetra. Húsið er tvískipt. Í öðrum endanum er ágæt geymsla. Í hinum endanum er búið að útbúa gestaherbergi með góðri þvottaaðstöðu. Lóð: Lóðin er afgirt með sólríkum, hellulögðum bakgarði og fallegu, upphituðu Serralux gróðurhúsi. Gróður og beð eru í góðri rækt. Bílastæði með rafknúnu hliði er á lóð þar sem auðveldlega komast tveir bílar fyrir. Framkvæmdir að sögn seljanda: 2024: Íbúð á jarðhæð tekin til gagngerra endurbóta. Gólfhiti lagður og gólf flotað. Eldhús, baðherbergi og gólfefni endurnýjuð. 2024: Baðherbergi í risi endurbætt að hluta og nýrri gestasnyrtingu komið fyrir á efri hæð. 2024: Stigi milli hæða teppalagður. 2024: Hús málað innandyra. 2021: Hús og gluggar málaðir. 2021: Þak var yfirfarið og málað ásamt því að skorsteinn var lagfærður og styrktur. 2021: Tvöfalt gler var sett í glugga yfir stiga og opnanlegt fag sett í hjónaherbergi. 2016: Allir pottofnar á efri hæð og í risi yfirfarnir og polyhúðaðir. 2008: Skólpleiðslur frá lóð og út í götu endurnýjaðar. 2006: Garður tekinn í gegn og jarðvegsskipt. Dreni komið fyrir og lóð hellulögð af fagmönnum. Allar nánari upplýsingar veitir: Lilja Guðmundsdóttir lögg. fasteignasali í síma 649-3868 eða *** Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum. Heimasíða Eignamiðlunar Eignamiðlun á Facebook

What's included

Garden
Living Area155.09999923706056 m²
Bedrooms4
Bathrooms3
Rooms7
Year Built1906

Location

Map loading soon

Neighborhood data on demand

Nearby essentials will load when this section comes into view.

Listed on

MBL Fasteignir

1.241.959 €

Mortgage calculator

Estimated monthly payment

5.334 €/mo

Down payment20 % · 248.392 €
248.392 €993.567 € loan
Term
Total repayable1.920.126 €
Interest rate5.00 %

Representative estimate · Landomo is not a mortgage broker. · Rates updated April 2026

Company

  • About
  • Press
  • Portals

Explore

  • Buy
  • Rent
  • Browse by location
  • Guides
  • Research
  • FAQ

Legal

  • Privacy Policy
  • Terms of Service
  • Cookie Policy
  • Imprint
landomo.com

© 2026 Landomo Real Estate. All rights reserved.