***TIL LEIGU EÐA SÖLU***
Skeifan fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Borgartún 22, 105 Reykjavík Tilbúin til afhendingar. Til sölu eða leigu. 2. hæð, öll hæðin, við Borgartún 22 í nýlega standsettu 526m² skrifstofuhúsnæði við Borgartún 22. Lyfta.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Kristján Sigurðsson , í síma 6189999, tölvupóstur [email protected].
Um er að ræða heila hæð í lyftuhúsi í Borgartúni sem skiptist í 14 misstór skrifstofurými og rúmgott sameiginlegt eldhús. Möguleiki er á að skipta hæðinni til helminga og nýta í tvennu lagi. Næg bílastæði eru í kringum húsið, 3 einkabílastæði fylgja með húsnæðinu. Eigninni fylgja tvær geymslur, önnur 31,8 m2 og hin 33,2 m2 sem staðsettar eru í kjallara hússins.
Lagnastokkar með tölvulögnum. Gluggar eru allan hringinn. Gengið er inn í sitt hvort skrifstofurýmið úr stigahúsi sem skiptist í austur- og vesturálmur. Á hæðinni eru tvö 12,5 m2 salerni auk ræstirýmis staðsett í stigahúsi, ætluð fyrir báðar álmurnar.
Húsnæðið er afhent nýmálað og með nýjum gólfefnum. Vaskar eru í nokkrum rýmum.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Kristján Sigurðsson í síma 6189999, tölvupóstur [email protected].
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.000 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALDA fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
SKEIFAN SKILAR ÁRANGRI - SÍÐAN 1985
Skeifan fasteignasala | Suðurlandsbraut 46 | 108 Reykjavík | Opið frá kl. 9-17 mánudaga til föstudaga | www.skeifan.is
Skeifan á FacebookShow more