listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.combeta
Home/Iceland
More listings nearby

House in Stykkishólmur

House in Stykkishólmur
House in Stykkishólmur - Main view
No longer available

This listing is no longer active. We keep it here for reference, but the details may be out of date.

House for sale, 252 m²

Stykkishólmur

4 bedrooms·3 bathrooms

842.375 €

3.343 €/m²

Listed Aug 27, 2026

About this listing

EINSTAKT HÚS - EINSTAKT TÆKIFÆRI Vernharð Þorleifsson lgf. og Magga Gísladóttir lgf. hjá RE/MAX kynna: Glæsilega eign með stórum bílskúr á algjörlega mögnuðum stað við bryggjuna í Stykkishólmi. Árið 2011 létu núverandi eigendur byggja hæð ofan á húsið og er eignin nú samtals 252 fm. Samhliða stækkuninni var húsið endurnýjað að stórum hluta og hefur því verið vel við haldið í gegnum árin. Jafnt að innan sem utan. Bílskúrinn er með stórri innkeyrsluhurð og fyrir framan bílskúrinn eru bílastæði fyrir allt að fimm bíla. Stórkostlegt útsýni blasir við úr húsinu. Hvort sem notið er sumarkvölds og sólarlags yfir Breiðafirði eða norðurljósanna úr heita pottinum á efstu hæð. Það gerist vart fallegra og staðsetningin á sér fáar hliðstæður. Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson lgf. í síma 699-7372 / og Magga Gísladóttir lgf. í síma 6987494 / Kíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða á Instagram Þetta er einstök eign sem við mælum eindregið með að áhugasamir kynni sér. Auk þess að vera glæsilegt fjölskylduheimili og hefur þjónað núverandi eigendum sem slík þá býður eignin upp á fjölbreytta möguleika og gæti meðal annars hentað vel fyrir rekstraraðila í ferðaþjónustu. Nánari lýsing eignar: Húsið er þrjár hæðir. Á jarðhæðinni er stór bílskúr, herbergi og salerni. Á annari hæð er aðalrýmið. Þar er eldhús, borðstofa, þrjú herbergi og gestasalerni. Á þriðju og efstu hæð er stofa/sjónvarpsrými, herbergi, rúmgott og fallegt baðherbergi og þvottahús. Á efstu hæð er svo útgengt út á þaksvalir með heitum pott. Fyrir framan bílskúrinn eru 5 einkastæði á lóð. Nánari lýsing innan hús: Jarðhæð: Forstofa: Komið er inn í forstofu með náttúruflísum, hita í gólfi og lágum skáp. Úr forstofu er gengið inn í bílskúrinn. Bílskúr: Á fasteignaskrá er hann skráður 83,9 fm. Bílskúrshurðin er 2,74 m á hæð og 3,55 m að breidd. Lofthæð í bílskúr 2,94 m. Búið er að stúka af herbergi og þar er einnig salerni. Flottir gluggar meðfram öllu rýminu sem snýr að bryggjunni. Fyrir framan skúrinn er einkabílastæði sem hægt er að koma fyrir allt að fimm bílum eða tækjum af einhverju tagi. Hægt er að fara inn í skúrinn bæði inn um bílskúrshurð. Þar við hliðina er einnig er inngönguhurð. Önnur hæð: Eldhús: Er rúmgott með miklu skápaplássi og góðri vinnuaðstöðu. Hiti í gólfi og áfastri eyju sem hægt er að sitja við. Bakaraofn er í vinnuhæð og innbyggður örbylgjuofn. Borðstofa: Er við hliðina á eldhúsi. Hún er rúmgóð með afar fallegum glugga með setubekk sem snýr til vesturs. Svefnherbergi: Eru þrjú á hæðinni. Öll með fataskápum Baðherbergi 1: Er með walk-in sturtu og opnanlegum glugga. Upphengt salerni, handklæðaofn og hiti í gólfi. Þriðja hæð: Komið er inn í fallega setustofu sem hægt er að nýta sem borðstofu eða koníaks stofu. Mjög rúmgott herbergi með góðri skápainnréttingu. Baðherbergi 2: Með góðri snyrtiaðstöðu. Mjög gott skápapláss og sturtuaðstaða. Handklæðaofn og góð lýsing við spegil. Þvottaherbergi: Góð aðstaða er í þvottarými með góðri innréttingu og miklu skáparými og skolvask. Þvottavél og þurrkari eru í vinnuhæð og opnanlegur gluggi. Þaksvalir: Útgengt er út á þaksvalir með heitum potti. Þar er gott seturými og aðstaða fyrir grillið. Hægt að draga markísu yfir allt rýmið og hitarar eru til staðar. Stemmninguna sem myndast þar á góðum degi þarf vart að lýsa. Þriðja hæðin stendur hátt og þar sést vel yfir bæjarlífið, höfnina og vestrið. Ef norðurljósin láta sjá sig á stjörnubjörtu vetrarkvöldi þá er þetta staðurinn til að vera á. Húsið er upphaflega byggt 1955 og var gamli slippurinn í Stykkishólmi. Ný hæð bætt ofan á 2011 þar af leiðandi nýtt þak. Hæð 1 og 2 eru steyptar og 3ja efsta hæðin er timbur. 2. og 3ja hæð bárujárnsklæddar á loftræstri grind. Allir gluggar og hurðar voru endurnýjaðar. Allar rafmagnslagnir voru endurnýjaðar og ný tafla. Nýjar neyslulagnir og ofnalagnir lagðar og nýjir ofnar. Skrautlistar í kringum alla glugga gefa fallegan stíl. Innfelld led lýsing í öllum rýmum að undanskildu þvottahúsinu. Lýsing í þakskegginu dregur fram fallegt útlit hússins og gefur því einstaklega virðulegan svip. Endurnýjun hússins er afar vel gerð og smekkleg í alla staði. Hafið samband við: Vernharð lgf. í síma 699 7372 eða Magga Gísla lgf. í síma 698 7494 eða

What's included

Garage
Living Area252.0000015258789 m²
Bedrooms4
Bathrooms3
Rooms6
Year Built1955

Location

Map loading soon

Neighborhood data on demand

Nearby essentials will load when this section comes into view.

Listed on

MBL Fasteignir

842.375 €

Mortgage calculator

Estimated monthly payment

3.618 €/mo

Down payment20 % · 168.475 €
168.475 €673.900 € loan
Term
Total repayable1.302.351 €
Interest rate5.00 %

Representative estimate · Landomo is not a mortgage broker. · Rates updated April 2026

Company

  • About
  • Press
  • Portals

Explore

  • Buy
  • Rent
  • Browse by location
  • Guides
  • Research
  • FAQ

Legal

  • Privacy Policy
  • Terms of Service
  • Cookie Policy
  • Imprint
landomo.com

© 2026 Landomo Real Estate. All rights reserved.