Apartment in Reykjavík

3-bed apartment for sale, 98 m²

Reykjavík

3 bedrooms1 bathroom

535.000 €

5.487 €/m²

Listed Sep 12, 2026

About this listing

Domusnova og Víðir Arnar kynna skemmtilega og bjarta efri sérhæð með sérinngangi í litlu fjölbýli á vinsælum og veðursælum stað við Garðsenda 12 í Reykjavík. Um er að ræða íbúð sem er skráð alls 97,50 m2 að stærð ásamt geymslu í kjallara. Íbúðin telur þrjú svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús og baðherbergi, en sameiginlegt þvottahús er í kjallara og sér geymsla. Á lóðinni er stór sameiginleg timburverönd og einnig geymsla sem tilheyrir eigninni sem er ekki talin í heildarfermetra. Húsið hefur fengið ágætt viðhald að utan nýlega og lóð er snyrtileg. VEL SKIPULÖGÐ ÍBÚÐ Í FALLEGU LITLU FJÖLBÝLI Í EFTIRSÓTTU OG RÓLEGU HVERFI NEÐAN VIÐ SOGAVEG, ÞAR SEM STUTT ER Í ALLA HELSTU VERSLUN OG ÞJÓNUSTU ÁSAMT LEIK-, GRUNN OG FRAMHALDSSKÓLA. SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT STRAX Nánari skipting og lýsing eignahluta: Forstofa: Með flísum á gólfi og skáp og gengið er upp tröppur á næstu hæð í íbúðina. Hol: Við inngang er hol eða breiður gangur með parketi og skáp sem tengir saman vistaverur íbúðarinnar. Eldhús: Með upprunalegri innréttingu og nýlegu korkparketi á gólfi. Stofa: Afar björt með parketi á gólfi og gluggum í þrjár áttir. Hjónaherbergi: Með parketi á gólfi og vönduðum fataskáp. Herbergi: Með parketi á gólfi og stórum gluggum í þrjár áttir. (yfirbyggðar svalir) Barnaherbergi: Með parketi á gólfi og gluggum í tvær áttir. Baðherbergi: Með sturtu, salerni, vaski, skáp og spegli. Tengi fyrir þvottavél. Flísalagt hátt og lágt. Geymsla: Í kjallara er köld geymsla sem tilheyrir íbúðinni (4,9 fm) Verönd: Sameiginleg timburverönd fyrir framan hús. Geymsla á lóð: Á lóð er búið að koma fyrir klæddri 12 feta gámaeiningu og á íbúðin helming hennar sem nýtt er sem geymsla (rafmagnsofn er í rými). Stærð geymslu er c.a. 7,5 m2 og er ekki talið í heildarfermetra eignar. Húsið var sprunguviðgert þar sem talin var þörf á suður-, norður- og austurhliðum árið 2021-2022. Þriðja herbergið var útbúið með því að yfirbyggja svalir á framanverðu húsinu og því eru ekki svalir í íbúðinni. Allar nánari upplýsingar veita: Víðir Arnar Kristjánsson, löggiltur fasteignasali - S 854 2226 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir. Um ástand einstakra eignarhluta: Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu: Nýtt - Eignin er nýbygging. Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti. Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti. Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

What's included

Balcony

Location

Map loading soon

Neighborhood data on demand

Nearby essentials will load when this section comes into view.