Þriggja herbergja íbúð í lyftuhúsi með sér bílastæði í bílageymslu að Norðurbakka 11b, Hafnarfirði.
Um er að ræða mjög snyrtilega íbúð í lyftuhúsi ásamt geymslu, samtals 101 fm, auk afnota af sér bílastæði í bílageymslu. Gengið er inn í íbúðina af lokuðum stigapalli. Við inngang er góður fataskápur og þaðan er aðgengi að alrými íbúðarinnar, þ.e. eldhúsi, borðstofu og stofu. Gengið er til vinstri frá inngangi að baðherbergi, þvottahúsi og tveimur svefnherbergjum. Baðherbergið er snyrtilega innréttað með flísum í hólf og gólf, rúmri sturtuaðstöðu og baðkari. Góðir fataskápar eru í svefnherbergjum. Alrýmið/stofan er björt og rúmgóð með útgengi á svalir. Eldhúsið er opið og rúmgott og búið góðum tækjum. Rúmgóð og snyrtileg geymsla er í kjallara en auk þess hefur leigjandi aðgengi að læstri hjólageymslu í sameign. Innangengt er frá sameign inn í bílageymslu.