landomo.cz
//Garðabær
fjolb, Vorbraut 12 (312), Garðabær
1 of 7
fjolb, Vorbraut 12 (312), Garðabær - Main view
1/7

3-bed apartment for sale, 124 m²

Garðabær

€693,750

€5,613/m²

Listed 17 hours ago · 3 Jul 2026

Apartment

Category

123.6 m²

Area

About this listing

--- Glæsileg 4ra herbergja íbúð við Vorbraut 12 í Garðabæ með bílastæði í bílakjallara, rúmgóðu alrými, þvottaherbergi og svölum með svalalokun --- Skoða verkefnið nánar á hlekk: www.vorbraut8-12.is Upplýsingar gefur: Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / [email protected] LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Vorbraut 12 í Garðabæ. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 4 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílakjallara flestum íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt sérgeymslu á jarðhæð.  Íbúð 312: Er glæsileg 123,6 fermetra 4ra herbergja íbúð á 3. hæð með svölum með svalalokun og sérmerktu bílastæði í lokuðum bílakjallara. Stór geymsla fylgir íbúðinni sem er 21,1 fermetrar að stærð. Afhending er í nóvember 2026 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið. Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús í alrými með eyju sem er opið við stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengi á svalir með svalalokun frá stofu og er sérmerkt stæði í bílakjallara. Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir og klæddir að utan sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini. Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.vorbraut8-12.is Vorbraut stendur á einstökum stað í Garðabæ – í grónu og friðsælu umhverfi þar sem náttúra og þægindi borgarlífs fara saman. Hér eru fjölbreytt útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir rétt við heimilið, auk þess sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Garðabær er þekktur fyrir öflugt samfélag, góðar samgöngur og fjölbreytt tækifæri til íþrótta, menningar og útivistar – allt sem þarf fyrir virkt og innihaldsríkt daglegt líf. Svæðið í kringum Vorbraut býður upp á jafnvægi milli rólegrar náttúru og nálægðar við líflega miðju höfuðborgarsvæðisins. Hér getur þú notið kyrrðarinnar heima fyrir og verið samt aðeins örfáum mínútum frá vinnu, verslun og afþreyingu. Það gerir Þorraholt að kjörnum stað fyrir þá sem vilja bæði lífsgæði og þægindi í senn. Til suðurs er golfvöllur GKG, Leirdalsvöllur sem er glæsilegur 18 holu völlur. Spottakorn lengra er Vífilstaðavatn og Heiðmörkin með óteljandi hjóla- og göngustígum. Til norðurs er Smáralind ásamt verslunarkjörnum í Lindum og á Dalvegi. Þá er Garðatorg alltaf vinsælt meðal Garðbæinga þar sem eru skemmtilegir veitingastaðir og ýmis þjónusta. ÞG Verk hafa yfir 28 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína.  Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum.  ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR: Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / [email protected] Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru Arens innréttingar (Ormsson). Innréttingar eru í dökku viðarútliti. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Neðri skápar á baðherbergjum eru með skúffu og efri skápar eru með spegli. Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Siemens. Íbúðum er skilað með spanhelluborði (innbyggð vifta í helluborði þar sem eldhúseyjur eru), innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu (ef er ekki eldhúseyja). Hreinlætistæki: Salernisskál (Grohe) er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Handlaugar eru ýmist frá Roca eða Valadares. Blöndunartæki eru hitastýrð frá Grohe. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými. Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur. Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á. Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins. Eignin afhendist skv. skilalýsingu.Show more

What's included

Elevator
Garage
Elevator

Key Stats

Area123.6 m²
Rooms4
Bedrooms3
Bathrooms1.0
ElevatorYes
GarageYes

Listed on

Synced 11 hours ago

Mbl Is

€693,750

Estimate

Investment economics

Estimated gross return if you let this apartment

Map

Location

Garðabær

Map unavailable

This listing does not include exact coordinates.

Neighborhood

Nearby essentials

Garðabær

Exact location unavailable

Nearby place distances need listing coordinates.

Financing

Mortgage calculator

Estimated monthly payment

€2,978/mo

5.00 % rateAPR 5.86 %
Down 20%Loan 80%
€139,000€554,750 loan
Total repayable€1,072,086
Interest rate5.00 %
APR5.86 %

Representative estimate · Landomo is not a mortgage broker. · Rates updated April 2026

Free quote

Get a real quote for these numbers

How soon are you looking to buy?

© 2026 Landomo. All rights reserved.

Map Explorer
Home
Apartment