listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.combeta
Home/Iceland
More listings nearby

jord, Hafnarás 1, Akranes (dreifbýli)

jord, Hafnarás 1, Akranes (dreifbýli)
jord, Hafnarás 1, Akranes (dreifbýli) - Main view

Land for sale

Hafnarás 1, Akranes (dreifbýli)

36.029 €

Listed Jun 26, 2026

About this listing

HÁKOT fasteignasala og Daníel Rúnar Elíasson löggiltur fasteignasali sími: 431-4045 / 899-4045 auglýsa: * HAFNARÁS 1 * Eignarlóð í frístundabyggð (6.573 fm) í landi Hafnarsels, Hvalfjarðarsveit Stutt lýsing á svæðinu. Jörðin Hafnarsel er um 100 ha að stærð og liggur ofan þjóðvegar nr.1 norðan Hafnarár. Frá jörðinni er um 10 km til Borgarness og um 25 km til Akraness. Lóðir undir frístundahús eru níu og er eitt lögbýli í byggðinni. Landið sem lóðirnar eru í hallar á móti suð-vestri og er að stærstum hluta vaxið birkikjarri, en að hluta liggur það á melum. Á jörðinni Hafnarseli er stunduð skógrækt. Á svæðinu er rafmagn og kalt vatn. Hver lóðarhafi sér um tengingar á vatnslögn úr götu inn á sína lóð. Stofngjald rafmagns greiðir hver lóðarhafi. Árgjald fyrir notkun á köldu vatni greiðir hver eigandi frístundahúss til landeiganda. Öllum lóðarhöfum er skilt að vera í félagi lóðareigenda í Hafnarseli. Nokkur atriði úr skilmálum yfir frístundabyggðina. Frístundahús skulu byggð úr steinsteypu og/eða úr timbri. Ekki er gerð krafa um þakform húsa. Litaval skal vera þannig að hús verði ekki áberandi í landslagi. Óheimilt er að hafa vegg- og þakfleti í ljósum litum s.s. hvíta, gula, bláa eða rauða. Stærð frístundahúsa, geymsla eða gestahúsa hvort sem þau eru sambyggð eða sérstæð mega vera samanlagt allt að 3% af stærð lóða. Sérhver lóðarhafi skal setja rotþró og siturlögn innan byggingarreits lóðar sinnar. Stærð og frágangur rotþróar og siturlagnar skal uppfylla ákvæði og skilyrði byggingarreglugerðar. Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum. ************ Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hákot bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildar fasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga). 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, umboði, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Umsýslugjald kr. 49.600 (m/vsk). 4. Lántökugjald veðskuldabréfa samkvæmt gjaldskrá lánveitenda. 5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Location

Map loading soon

Neighborhood data on demand

Nearby essentials will load when this section comes into view.

Listed on

MBL Fasteignir

36.029 €

Mortgage calculator

Estimated monthly payment

155 €/mo

Down payment20 % · 7.206 €
7.206 €28.823 € loan
Term
Total repayable55.702 €
Interest rate5.00 %

Representative estimate · Landomo is not a mortgage broker. · Rates updated April 2026

Company

  • About
  • Press
  • Portals

Explore

  • Buy
  • Rent
  • Browse by location
  • Guides
  • Research
  • FAQ

Legal

  • Privacy Policy
  • Terms of Service
  • Cookie Policy
  • Imprint
landomo.com

© 2026 Landomo Real Estate. All rights reserved.