# fjolb, Strikið 4, Garðabær

> Canonical listing: https://landomo.com/property/f549e5ff-9bb4-4388-843f-d1fad659ec49

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** removed
- **Transaction:** sale
- **Category:** apartment
- **Asking price:** 79,900,000 ISK
- **Location:** Sjáland, Höfuðborgarsvæðið, Garðabær, IS
- **Floor area:** 95.2 m²
- **Bedrooms:** 1
- **Published:** 2026-09-11T13:14:14.687Z
- **Last updated:** 2026-10-16T07:49:22.331Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Eignamiðlun kynnir:
Vönduð 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í Jónshúsi í Sjálandshverfinu í Garðbæ, íbúð fyrir 60 ára og eldri. Jónshús er sex húsa þyrping (Strikið 2-12) með 130 íbúðum fyrir 60 ára og eldri en þar hægt að kaupa léttan hádegisverð og meðlæti gegn vægu gjaldi í samkomusal húsanna á fyrstu hæð. Íbúðin er laus fljótlega eftir kaupsamning. Mögulegt að leigja bílastæði í bílastæðahúsi, næg bílastæði á lóðinni.

Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða 

Nánari lýsing:
Forstofa með þreföldum fataskáp.
Eldhús með eikar innréttingu frá Brúnás, gott vinnupláss og flísar milli efri og neðri skápa, glerhelluborð, ofn með blæstri í vinnuhæð og gufugleypir með kolsíu.
Þvottahús innaf eldhúsi, flísalagt með hillum.
Stofa, björt og rúmgóð með útgengi út á yfirbyggðar svalir.
Svefnherbergi, rúmgott með góðum eikar fataskáp.
Baðherbergi, flísalagt hólf í gólf með eikar innréttingu frá Brúnás, handlaug, upphengt salerni og sturta.
Geymsla innan íbúðar með góðum hillum og parket á gólfi en margir hafa nýtt rýmið sem vinnuherbergi.

Gólfefni íbúðar er 3ja stafa eikarparket, allar innréttingar og fataskápar eru frá Brúnás, spónlagt með ljósri eik og flísar á baðherbergi og þvottahúsi.

Einnig fylgir eigninni sér geymsla í kjallara og hlutdeild í sameign.

Húsið sjálft er staðsteypt lyftuhús, einangrað að utan og álklætt. Gluggar eru álklæddir timburgluggar með opnanlegum fögum úr áli, tvöfalt verksmiðjugler í gluggum. Aðalhurðir stigahúsa eru hliðopnandi rennihurðir og stigahúsin flísa- og tepplögð. Í miðjuhúsinu er þjónustukjarni í rekstri Garðabæjar þar sem hægt er að kaupa léttan hádegisverð og hressingu alla virka daga og sækja hina ýmsu þjónustu. Í húsinu er einnig salur sem eigendur geta leigt gegn vægu gjaldi. Húsfélagið er vel rekið og stendur mjög vel. Greiðsla í hússjóð er 25.700 kr.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

## Source and attribution

- Cite and link: https://landomo.com/property/f549e5ff-9bb4-4388-843f-d1fad659ec49
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
