Betri Stofan fasteignasala kynnir nýtt til leigu: Bræðraborgarstíg 16, glæsileg leigurými, hæðir eða heildar húseignin sem er skráð skv. HMS 1.052 fm og stendur á frábærum stað á horni Öldugötu og Bræðraborgarstígs í 101 Reykjavík. Húsið er steinsteypt, mikið endurnýjað og einkar glæsilegt. Á baklóð sem snýr að Drafnarstíg er fjöldi bílastæða. Eignin getur verið laus strax / fljótlega.
Sjá hér myndband af eigninni
Nánari lýsing: Eignin telur tvær aðalhæðir ásamt fallegu risi og kjallara.
Jarðhæð telur stóran fundarsal, fundarherbergi, snyrtingar, anddyri / móttöku, Miklir möguleikar varðandi nýtingu og hægt að skipta upp rýmum og sníða að óskum leigjanda.
Á annarri hæð eru opin vinnurými, skrifstofur, eldhús, skemmtilegur matsalur ásamt snyrtingum, útgengt á svalir.
Á þriðju hæð er mjög sjarmerandi skrifstofurými undir súð, snyrtingar og útgengi á tvennar svalir
Í kjallara eru geymslurými, tæknirými og snyrting.
Þetta er einstakt hús með ótal möguleika á frábærum stað 101 Reykjavík - til leigu er heildar húseignin eða minni einingar skv. samkomulagi.
Allar nánari upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson fasteignasali í síma 899-1178 eða [email protected]
Getum bætt við okkur eignum í leigumeðferð - fyrsta flokks framsetning og vönduð vinnubrögð - [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Show more